Mál eru nú farin að gerast æði flókin fyrir almenning að átta sig þarna í Fjármálaeftirlitinu.
Hæstaréttarlögmenn eru kallaðir á vettvang til að rýna í álitsgerðir hæstaréttarlögmans um meint vanhæfi forstjóra FME fyrir langalöngu. Þeir segja ekkert lögbrot framið en málið frekar af siðfræðilegum toga. Þá dettur manni helst í hug að prestar hefðu átt að ganga í málið.
Svo kemur upp úr dúrnum að litli Landsbankamaðurinn hafi guðað á glugga hjá Gunnari með einhverja pappíra um fjárhagsmálefni alþingismanns, þegar allir voru háttaðir og búnir að fara með Faðirvorið.
Gunnar segir að það sé fjarstæða hann hafi engin slík gögn séð.
Svo kærir stjórn FME eitthvað sem ekkert er, að því er virðist og engin veit neitt.
Svo setja menn öðrum mönnum fresti fyrir miðdegikaffi og þá eru menn allt í einu reknir fyrir morgunkaffi.
Svo segja menn bara eins og ekkert sé, við hittumst bara hjá dómaranum, lagsmaður. Eins og þar sé eitthvert félagaheimili.
Er nema von að almenningi sé brugðið.
Er brugðið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | 1.3.2012 | 20:50 | Facebook
Myndaalbúm
Bloggvinir
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Bergljót Gunnarsdóttir
- Dagrún Steinunn Ólafsdóttir
- Grétar Mar Jónsson
- Gunnar Rögnvaldsson
- Hörður B Hjartarson
- Ingibjörg Friðriksdóttir
- Jón Páll Jakobsson
- Jón Ragnar Björnsson
- Kristján Hilmarsson
- Kristján P. Gudmundsson
- Lilja Skaftadóttir
- Sigríður B Svavarsdóttir
- Sigurbjörg Eiríksdóttir
- Sigurjón Þórðarson
- Sumarliði Einar Daðason
- Valdimar Samúelsson
- au
- cakedecoideas
- Björgvin Þangbrandur "Birkirmár" Gíslasson
- Guðjón E. Hreinberg
- Kristinn Ágúst Friðfinnsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.12.): 343
- Sl. sólarhring: 600
- Sl. viku: 1601
- Frá upphafi: 570907
Annað
- Innlit í dag: 315
- Innlit sl. viku: 1434
- Gestir í dag: 310
- IP-tölur í dag: 305
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þetta mál er stöðugt að gerast athyglisverðara, sérstaklega hvað varðar sjálfstæðismenn. Svo mætti halda að það séu einmitt sjálfstæðismenn sem hafa haldið í taumana á stjórnarformönnum fjármálaeftirlitsins!
Nýjustu fréttir herma að Gunnar var í því að rannsaka Guðlaug Þór Þórðarson, og Guðlaugur segist koma af fjöllum um þetta mál :)
Hérna er stórt hneyksli í afhjúpun og augljóst að ekki er öllum kátt hjá sjálfstæðismönnum og frammsókn.
J.
Jonsi (IP-tala skráð) 1.3.2012 kl. 20:52
Þetta lyktar æ meira af samsæri einhverja að losna við óþægan ljá úr sinni þúfu.
Axel Jóhann Hallgrímsson, 1.3.2012 kl. 23:58
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.