Ólögmæt notkun skjaldarmerkisins

Skjaldarmerki Íslands - Reglubók og vefsíður

20.12.2004

Forsætisráðuneytið hefur gefið út nýja reglubók um skjaldarmerki Íslands ásamt því að endurbæta vefsíður um skjaldarmerkið. Reglubókinni og vefsíðunum er ætlað að vera til leiðbeiningar um rétta notkun skjaldarmerkisins. Samkvæmt 12. gr. a. laga um þjóðfána Íslendinga og ríkisskjaldarmerkið, nr. 34/1944, er skjaldarmerki Íslands auðkenni stjórnvalda ríkisins og notkun ríkisskjaldarmerkisins er þeim einum heimil.

Forsætisráðuneytið hefur farið þess á leit við ráðuneytin og ríkisstofnanir með bréfi dags. 17. desember 2004, að þau sjái til þess að hið hreinteiknaða skjaldarmerki sé notað við allar útgáfur þar sem skjaldarmerki Íslands er sett á rit. Auk þess er farið fram á að virtar séu reglur um bakgrunn og grunnflöt fyrir skjaldarmerkið. Ennfremur er þess óskað að hið hreinteiknaða skjaldarmerki verði notað á öll pappírsföng, skilti og aðrar merkingar hið fyrsta og eigi síðar en í ársbyrjun 2006. Þetta á jafnframt við um aðra notkun skjaldarmerkisins.

Samkvæmt reglugerð um Stjórnarráð Íslands, nr. 3/2004, fer forsætisráðuneytið með forræði í málum er varða ríkisskjaldarmerkið. Til að mæta kröfum um notkun skjaldarmerkisins í nútímaprent- og skjámiðlum var grafíska hönnuðinum, Ólöfu Árnadóttur, og myndlistarmanninum, Pétri Halldórssyni, auglýsingastofunni P & Ó falið að hreinteikna og stílfæra skjaldarmerkið. Gætt var í hvívetna að varðveita upprunalega teikningu Tryggva Magnússonar.

Á vefslóðinni skjaldarmerki.forsaetisraduneyti.is er unnt að fræðast um sögu skjaldarmerkisins, gildandi lög og reglur og leiðbeiningar um notkun þess. Þar má einnig nálgast 20 mismunandi útfærslur af skjaldarmerkinu fyrir prent- og skjámiðla. Með þessu aukna aðgengi á rafrænu formi er tryggt að hönnuðir, prentsmiðjur og aðrir sem vinna að útgáfum fyrir ráðuneytin og ríkisstofnanir séu ávallt með rétta útgáfu af skjaldarmerki Íslands.

Reglubókin er fyrst og fremst til notkunar innan Stjórnarráðsins. Í bókinni er að finna sama efni og á vefsíðunum ásamt upplýsingar um staðsetningu skjaldarmerkisins á pappírsföngum, uppsetningu á skrift ráðuneytanna og bréfsefna, auk ýmissa eyðublaða og forma í skjalavistunarkerfum ráðuneytanna.

Heimild: Vefsíða forsætisráðuneytisins


Í Reykjavík, 20. desember 2004.


mbl.is Undirskriftum fjölgar ört
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Landfari

Og hvað? Hvert er tilefni þess að þú birtir okkur þennan fróðleik????

Landfari, 22.1.2012 kl. 15:02

2 Smámynd: Þorsteinn H. Gunnarsson

Megin regla þjóðskipulags okkar hvílir á því að farið sé að lögum.

Einstaklingar sem standa að undirskriftarsöfnun til stuðnings einu framboði umfram öðru til kjörs forseta Íslands hafa ekki heimild til að nota skjaldarmerkið í áróðri sínum.

Það eru einungis stjórnvöld sem mega nota það.

Þorsteinn H. Gunnarsson, 22.1.2012 kl. 15:22

3 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

skjaldarmerki_islands_nytt

Guðmundur Ásgeirsson, 22.1.2012 kl. 15:33

4 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Góður Guðmundur.

Sigurður Haraldsson, 22.1.2012 kl. 18:32

5 Smámynd: Landfari

Nota þeir skjaldarmerkið?

Ef svo er og þú ert að vekja athygli á því og að það sé bannað af hverju segirðu þá ekki frá því í bloggfærslunni?

Landfari, 22.1.2012 kl. 23:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband