,,Á einu augabragði" skipast veður í lofti.
Ef Sigmundur vill ekki vera í vistinni hjá Ögmundi gæti hann hugsanlega fengið vetrarmanns stöðu á Grímstöðum á Fjöllum.
En þar er nú víst brjálað veður og ekki hundi út sigandi á þessum tíma.
Þessu málið er lokið.
![]() |
Brjáluð ákvörðun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | 25.11.2011 | 15:42 | Facebook
Myndaalbúm
Bloggvinir
-
Axel Jóhann Hallgrímsson
-
Bergljót Gunnarsdóttir
-
Dagrún Steinunn Ólafsdóttir
-
Grétar Mar Jónsson
-
Gunnar Rögnvaldsson
-
Hörður B Hjartarson
-
Ingibjörg Friðriksdóttir
-
Jón Páll Jakobsson
-
Jón Ragnar Björnsson
-
Kristján Hilmarsson
-
Kristján P. Gudmundsson
-
Lilja Skaftadóttir
-
Sigríður B Svavarsdóttir
-
Sigurbjörg Eiríksdóttir
-
Sigurjón Þórðarson
-
Sumarliði Einar Daðason
-
Valdimar Samúelsson
-
au
-
cakedecoideas
-
Björgvin Þangbrandur "Birkirmár" Gíslasson
-
Guðjón E. Hreinberg
-
Kristinn Ágúst Friðfinnsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.6.): 0
- Sl. sólarhring: 20
- Sl. viku: 484
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 385
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Það er allt í lagi að gera grín að Sigmundi fyrir að hafa farið ölvaður í pontu á Alþingi, en að nota þetta í þeim tilgangi sem þú gerir, er þér til stórlegrar minnkunar.
Þessu máli er alls ekki lokið.
Gunnar Th. Gunnarsson, 25.11.2011 kl. 15:51
Sigmundur Rúnar varð sér til háborinna skammar í ræðustól á alþingi og er því ekkert stikkfrí undan því Gunnar.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 25.11.2011 kl. 15:57
Sé nákvæmlega ekkert í innleggi þínu Þorsteinn sem gæti orðið þér til minnkunar!
Húmorsleysi Gunnars er honum frekar til vansa:)
Kristján H Theódórsson, 25.11.2011 kl. 16:02
Ég sagði að það væri allt í lagi að gera grín að ölvun í ræðustól. Hvernig á ég að orða þetta svo þið skiljið það?
En finnst ykkur það virkilega málefnalegt að nota ÞAÐ sem rök í einstökum málum?
Gunnar Th. Gunnarsson, 25.11.2011 kl. 16:17
Á einu augabragði er nú bara orðið svona sjálfstætt atriði, sem þessi tiltekni þingmaður bjó til við skrýtnar aðstæður. 'Eg sé bara ekkert að því að nota það. Og satt að sega finnst mér ólíklegt að honum mislíki það. Það er nefnilega þannig að ill umtal er betra en ekkert umtal hjá íslenskri elítu og stjórnálamönnum, það sagði allavega Bryndís Schram.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 25.11.2011 kl. 16:20
Ég verð nú að þola það þó sagt sé að ég hafi orði mér til minnkunnar. Það fylgir þessu bloggi einhverjar skrámur.
Ég var nú einn af fáum sem hélt hlífiskyldi yfir Sigmundi Erni hérna á blogginu, þegar hann kom kenndur í pontu á Alþingi og dró ég frekar úr þeim atburði. En ég hef náttúrlega andvara á mér gagnvart þingmanninum og hans atferli og hef fullt leyfi til þess.
Það sem ég hef áhyggjur af eru ummæli hans þar sem hann gefur í skin að innanríkisráðherra sé ekki hæfur til að taka þessa ákvörðun.
Þá er eðlilegt að spurt sé hvað á hann við með þessum ummælum?
Ráðuneytið fór vandlega yfir þetta mál og tók sér hæfilegan tíma til þess.
Þorsteinn H. Gunnarsson, 25.11.2011 kl. 16:23
"Ráðuneytið fór vandlega yfir þetta mál og tók sér hæfilegan tíma til þess."
Það var augljóst frá upphafi að Ögmundur notaði ekki þennan "hæfilega tíma" til þess að taka ákvörðun, af eða á, um málið. Hann tók þá ákvörðun strax. Töfin var til að sýnast.
Gunnar Th. Gunnarsson, 25.11.2011 kl. 16:40
Að koma ölvaður í ræðustól Alþingis er ekki við hæfi. Það er svo annað mál að þetta "augabragð" SER var nú bara kátlegt innlegg í þjóðarumræðuna.
Sjálfur er ég þeirrar skoðunar að það sé ásættanlegri skýring á strákslegu hátterni í pontu á Alþingi að vera fullur en heimskur.
Auðvitað verður Samfylkingin bara að kyngja þessu og réttast væri fyrir þann klúbb að spara heitingar sem enginn gerir neitt með.
En svo kemur það í ljós hvort Samfylkingin og sá kínverski taka bara ekki Magma á dæmið?
Árni Gunnarsson, 25.11.2011 kl. 18:29
Það dugar ekki til Árni því í Magmamálinu virðast lög hafa verið brotinn, ef maður les þau lög sem Ögmundur fór eftir, þá virðst mér að í Magmamálinu hafi verið farið á svig við lögin. Ef ekki þá verðum við bara að segja upp EES samningnum.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 26.11.2011 kl. 10:43
Þorsteinn er nú með allra bestu Moggabloggurunum. Einn af fáum sem þess virði er að lesa. Hæfilega hæðinn og kann að fara með það. Áfram Þorsteinn! :-)
Badu (IP-tala skráð) 26.11.2011 kl. 13:51
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.