Prúðmannleg framganga lögreglu

Úfar hafa risið vegna úrlausnar Gerðardóms um kjör lögreglumanna. Lögreglumenn eru ósátti við niðurstöðuna.

Af því tilefni efndu þeir til kröfugöngu frá Lögreglustöðinni við Hverfisgötu að fjármálaráðuneytinu til að afhenda fjármálaráðherra yfirlýsingu.

Það var vel til fundið af lögreglumönnum að fara í þessa göngu sem fram fór í dag.

Með því gefa þeir landsmönnum fordæmi um prúðmannlega framgöngu í sínum málum. Vissulega hafa allir leyfi til að leggja áherslu á málefni sín með friðsamlegum hætti.

Lögreglumenn hafa með þessum hætti slegið hinn rétta tón í málefnabaráttu.

Ef til vill geta þeir komið fulltrúa inn á Alþingi í næstu Alþingiskosningum.

Það væri spennandi viðfangsefni.

Þeir ættu að reyna að tala við Guðmund Steingrímsson. Hann er með laus pláss og getur munstrað fólk.


mbl.is „Mikil samstaða lögreglumanna“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Og gaman að sjá lögreglumenn sem eru í veikindaleyfi marsera á fullu kaupi frá okkur. Maður fer að skilja siðferðið sem lá að baki innkaupum frá ættingjum. Er ekki alþingi fullt af svona fólki nú þegar?

Viddi (IP-tala skráð) 29.9.2011 kl. 18:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband