Það var virkilega gaman að fara á flugsýningu Flugmálafélag Íslands á Reykjavíkurflugvelli í dag. Þarna var mikið úrval af gömlum flugvélum sem gaman var að skoða. Í skemmunni var ýmiss fróðleikur um flugsöguna.
Sýningaratriðin voru fjölbreytt svo sem kallarnir sem hengu niður úr fallhlífum og flugu um eins og Georg gírlausi í Andrés Önd. Listflugið var glæsilegt og ekki laust við að hrollur færi um mann stundum í áhættusömum atriðum. Barnabarnið var yfir sig hrifið þegar reykurinn kom úr vélunum.
Páll Sveinsson, gamli þristurinn, fór með menn í fallhlífarstökk og svifu þeir til jarðar sex saman í hóp og lentu mjúklega, þó maður héldi ævinlega að þeir myndu lenda einhversstaðar á öxlunum í tré upp í Öskjuhlíð.
Margt er ótalið. En það var tignarlegt að sjá þegar Boeing 757 þota Icelandair flaug yfir og lenti og tók af stað.
Þetta var hin besta skemmtun og fræðsla og hafi þeir þökk fyrir sem að henni stóðu.
Fjölmenni á flugsýningu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | 10.9.2011 | 20:20 (breytt kl. 22:27) | Facebook
Myndaalbúm
Bloggvinir
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Bergljót Gunnarsdóttir
- Dagrún Steinunn Ólafsdóttir
- Grétar Mar Jónsson
- Gunnar Rögnvaldsson
- Hörður B Hjartarson
- Ingibjörg Friðriksdóttir
- Jón Páll Jakobsson
- Jón Ragnar Björnsson
- Kristján Hilmarsson
- Kristján P. Gudmundsson
- Lilja Skaftadóttir
- Sigríður B Svavarsdóttir
- Sigurbjörg Eiríksdóttir
- Sigurjón Þórðarson
- Sumarliði Einar Daðason
- Valdimar Samúelsson
- au
- cakedecoideas
- Björgvin Þangbrandur "Birkirmár" Gíslasson
- Guðjón E. Hreinberg
- Kristinn Ágúst Friðfinnsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.12.): 333
- Sl. sólarhring: 409
- Sl. viku: 1134
- Frá upphafi: 570431
Annað
- Innlit í dag: 309
- Innlit sl. viku: 1023
- Gestir í dag: 297
- IP-tölur í dag: 294
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.