Þetta er ekki gott mál fyrir Katrínu. Það virðist ekki vera tekið mark á orðum hennar og þau talin litlu skipta. Þó höfðu ,,samningamenn Icelandair hallað sér aftur í sætum sínum, rennt sér frá samningaborðinu og farið að bíða eftir því að þeir yrðu skornir niður úr snörunni" er haft eftir Mbl.is sem hafði það eftir Stöð 2, sem hafði það eftir Kjartani Jónssyni, þegar þeir heyrðu orð hennar. Það var gott að þeir duttu ekki aftur fyrir sig. Þeir hafa sennilega verið með beltin spennt eins og tíðkast í flugtaki og allt er í háalofti.
Katrín virðist segja si svona eitthvað út í loftið og vera hálf utan við sig með rómantískt blik í augunum enda nýgift. Allt í plati og voða gaman.
Hún er sennilega í einhverskonar sveiflujöfnun, en það er gott orð yfir það þegar jafna þarf út árstíðarbundnar sveiflur í sambandi við vinnu.
Orð Katrínar skiptu ekki máli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | 25.6.2011 | 20:51 | Facebook
Myndaalbúm
Nóv. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Bloggvinir
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Bergljót Gunnarsdóttir
- Dagrún Steinunn Ólafsdóttir
- Grétar Mar Jónsson
- Gunnar Rögnvaldsson
- Hörður B Hjartarson
- Ingibjörg Friðriksdóttir
- Jón Páll Jakobsson
- Jón Ragnar Björnsson
- Kristján Hilmarsson
- Kristján P. Gudmundsson
- Lilja Skaftadóttir
- Sigríður B Svavarsdóttir
- Sigurbjörg Eiríksdóttir
- Sigurjón Þórðarson
- Sumarliði Einar Daðason
- Valdimar Samúelsson
- au
- cakedecoideas
- Björgvin Þangbrandur "Birkirmár" Gíslasson
- Guðjón E. Hreinberg
- Kristinn Ágúst Friðfinnsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 10
- Sl. sólarhring: 17
- Sl. viku: 75
- Frá upphafi: 566931
Annað
- Innlit í dag: 9
- Innlit sl. viku: 59
- Gestir í dag: 9
- IP-tölur í dag: 6
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Það setur enginn lög á flugmenn án réttlátra kjara þeirra, svo mikið er víst!
Ekki einu sinni þessi ágæta stúlka, sem heitir Katrín Júlíusdóttir!
Svona er blákaldur raunveruleikinn bara.
M.b.kv.
Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 25.6.2011 kl. 21:25
Það er ekki neitt til að setja lög á, mennirnir ætla að vinna sína vinnu, þeir ætla bara ekki að vinna yfirvinnu. Ef ég veit rétt hefur það legið lengi fyrir að Icelanair hefur ekki náð að manna sumar áætlunina, hversvegna, má svo velta fyrir sér.
Bjössi (IP-tala skráð) 25.6.2011 kl. 21:34
Hvað er að því að einkahlutafélög, eins og Icelandair, sem ganga virkilega vel, veiti starfsfólki sínu mannsæmandi hækkanir. Eiga allir að vera steyptir í sama 12% mótið eins og mafían SA vill? Það er ekki allt að ganga illa hér, sem betur fer. Ég er klár á því að ef flugmenn fá meiri hækkun en þessi "hefðbundna" hækkun er þá mun það skila sér til þeirra sem á eftir koma, allavega að einhverju leyti. Mun betra fyrir okkur launþega að þeir nái betri árangri heldur en að allur þessi hagnaður fari bara í hluthafa. Erum við ekki búin að læra nóg af þessum hluthafa-kapítalisma?
Ég segi ÁFRAM FLUGMENN - það erum við starfsmenn þjóðarinnar sem sköpum verðmætin, ekki hluthafarnir !!!
Sigurður (IP-tala skráð) 25.6.2011 kl. 23:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.