Réttur til landsafnota

LandvætturÞað verður að koma einhver ákvæði inn í stjórnarskrána um rétt manna til landsafnota og til að getað lifað af landsins gæðum. Það er ófært að búa við þessar kvótagirðingar í landbúnaði.

Einnig að menn hafi rétt til að lesa ber, tína fjallagrös og veiði hverskonar við strendur og í almenningum sér til matar og lífsviðurværis. Annars verða menn að ganga í ESB og þiggja einhvern beina frá þarlendum mönnum.

Eins þarf að tryggja umferðarrétt hverskonar og tjaldstæði að skaðlausu við lífríki. Fornar reiðleiðir verður að tryggja í hvívetna svo menn geti ferðast um landið þá er olían þrýtur.

Varast ber að beita búpeningi í þjóðlendur þar sem ofbeit á sér stað. Skal forsætisráðherra sem fer með þjóðlendur, þegar í stað kvaddur  til og áminna bændur ef afréttir innan þjóðlendna sé ofbeittir.

Álfar og huldufólk skulu njóta friðhelgi.


mbl.is Fimm ráðsfundir fyrir páska
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vilhjálmur Stefánsson

Ég á 5 börn 9 barnabörn og eina konu til  50 ára ég vil að við fáum að tína ber og grös ,skóta mér í soðið ein og ég fékk þegar ég var að alast upp Vestur í Djúpi.og ég geri þetta en ásamt minni Fjölskyldu.Skrepp ásmá kænu og veiði fisk.Svona líf gefur líf og það má ekki taka af hvorki þér né mér og afkomendum okkar.     

Vilhjálmur Stefánsson, 18.4.2011 kl. 22:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband