Þingvallasveit
Við skulum ganga í Þingvallasveit,
sólin hún vermir hvern stein og hvern reit,
Skóginn við skoðum og slóðirnar rekjum,
söguna ræðum og andann upp vekjum.
Leiðin hún liggur um kletta og klungur,
krókótta stíga er liggja yfir sprungur.
Spörð eftir rjúpu á leiðinni sjást,
söngglöðum fuglum og kjarri að dást.
Gættu þín kona, hér er hætta og vá
hraunið er úfið og að sér skal gá.
Aðvörun ástvinar, vel er það meint
þó óvarkár konan hlýði því seint.
Áfram við göngum og umhverfið lokkar,
útsýnið fagurt og stundin er okkar.
Friðsæld í lofti og fuglanna hljóma,
finnum hér hvarvetna sögunnar óma.
Á Skógarkotshlaði að okkur streyma,
frá steingráum hleðslum sem engu gleyma,
svipir og sögur um lífið hér forðum,
störfum og leik sem ei greint er með orðum.
Heimleiðis höldum við stígana hrjúfa,
hlustum á sönglist vorboðans ljúfa.
Tjald hefur risið á túninu græna.
Tákn fyrir komandi sumarið væna.
Inga Þórunn Halldórsdóttir í maí 2007
Samstaðan er mikil | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | 6.4.2011 | 15:07 | Facebook
Myndaalbúm
Nóv. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Bloggvinir
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Bergljót Gunnarsdóttir
- Dagrún Steinunn Ólafsdóttir
- Grétar Mar Jónsson
- Gunnar Rögnvaldsson
- Hörður B Hjartarson
- Ingibjörg Friðriksdóttir
- Jón Páll Jakobsson
- Jón Ragnar Björnsson
- Kristján Hilmarsson
- Kristján P. Gudmundsson
- Lilja Skaftadóttir
- Sigríður B Svavarsdóttir
- Sigurbjörg Eiríksdóttir
- Sigurjón Þórðarson
- Sumarliði Einar Daðason
- Valdimar Samúelsson
- au
- cakedecoideas
- Björgvin Þangbrandur "Birkirmár" Gíslasson
- Guðjón E. Hreinberg
- Kristinn Ágúst Friðfinnsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 17
- Sl. viku: 74
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 57
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Því sumarið situr þingið vort ei
Síðustu orð skulu ei vera "NEI"
Þá hrunkast á horreim eitt ráðherragrey
Sem ei gerir nokkuð gott nema GAY.
Óskar Guðmundsson, 6.4.2011 kl. 16:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.