Skerpiplógur og toghlerar

Í brúnni á HerjólfiHerjólfur þyrfti að hafa aftan í sér skerpuplóg og toghlera, þegar hann siglir út úr höfninni þannig að hann tæki álitlega sköfu af sandi með sér út.

Þetta er alvanaleg aðferð hjá bændum þegar þeir eru við jarðræktarstörf að nota flaghefla til að færa til jarðveg í nýræktum.

Herjólfur er með 7300 hestafla vélar og ætti að getað brunað út úr höfninni þegar sæmilegt veður er með þessa nýju sköfu og svo væri losað og hún hífð um borð þegar út væri komið eða væri látinn liggja við stjóra á meðan skotist væri til Eyja.

Myndin er af færsluhöfundi hlýða á fræðilegar umræður skipstjórnenda Herjólfs og skipstjóra sandæluskips í brúnni á Herjólfi í sumar: Málefni Landeyjarhöfn.

Menn mega alls ekki deyja ráðalausir og missa kjarkinn í þessu máli.


mbl.is Herjólfur komst í Landeyjahöfn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Góð hugmynd að láta eina skipið sem má sigla um þessa höfn sjá um sig sjálft!

Sigurður Haraldsson, 19.9.2010 kl. 09:29

2 Smámynd: Þorsteinn H. Gunnarsson

Með því að taka kvísl úr Markarfljóti með 10-20 m3/sek rennsli og láta renna í gegn um höfnina að þá held ég að það væri komin upp ný staða.

Vetrarrennsli Blöndu var fyrir virkjun 25 m3/sek. Það fór svo upp ú 450 m3/sek á sumrin. Blanda bar oft  töluverða möl og sand fram.

Hér getur verið um að sömu hugmyndafræðina að ræða og sömu lögmál. 

Þorsteinn H. Gunnarsson, 19.9.2010 kl. 10:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband