Baldursbrá

Laugarnesið  er sá staður sem ég man fyrst eftir mér. Þar hafði Bandaríkjaher sett niður offiserabragga sem fólk notaði svo síðar. Við lékum okkur þarna í þessari unaðsnáttúru sem Laugarnesið er. Mikill gróður og ég man eftir því hve Baldursbráin var öflug og útbreidd.

Í Laugarnesi bjó Sigurður Ólafsson hestamaður og söngvari og var hann síðasti ábúandinn á jörðinni. Hann ræktaði grá hross og var Gletta frægust, marfaldur sigurvegari í skeiði.

Mér er það minnistætt þegar Birgir bróðir minn bjargaði heimasætunni í Laugarnesi Þuríði Svölu frá drukknun við bryggjuna á Kirkjusandi 1952. Það var snöfurlega gert af 14 ára gutta enda mikil verðmæti í húfi eins og komið hefur á daginn.

Sigurjón Ólafsson myndhöggvari átti heima þar líka og var maður oft að paufast í kringum hann.

Þá var Dala-Brandur með aðstöðu fyrir rútur sínar þarna og fannst mér hann alltaf dularfullur.

Eftir því sem mér skilst er Laugarnesfjaran friðuð og er bannað að hreyfa þar við steinum og efnistaka óheimil. Ég held að það sé svolítið sérstakt að það skuli vera til landnámsjörð nokkuð óröskuð til inn í miðju borgarlandi. Það gefur möguleika á að efla menningartengda ferðaþjónustu á svæðinu og mættu borgaryfirvöld gera meira til þess að gera þetta svæði meira aðlaðandi fyrir almenning.

Þar er mjög góð lending, svokölluð Laugarnesvör. Hana mætti gera aðgengilegri fyrir almenning og er gráupplagt að geta sett þar fram sjókajaka fyrir þá sem hafa áhuga á slíku.


mbl.is Margir skoðuðu villt blóm í Laugarnestanga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurbjörg Eiríksdóttir

Þetta er rétt hjá þér. Það verður fjársjóður innan skamms að finna blett í Reykjavík þar sem er ekki bara svart malbik!

Kveðja úr ómengaðri náttúrunni á Stafnesi.

Silla.

Sigurbjörg Eiríksdóttir, 14.6.2010 kl. 08:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband