Skaðabætur

Ég vil nú gera grein fyrir atvikaröð í þessu máli sem gæti átt sér stað í alvörunni.

Segjum sem svo að þetta verði þróunin að Besti flokkurinn eigi möguleika á 4 mönnum í borgarstjórn.

Látum okkur detta í hug að á síðustu metrunum hætti Besti flokkurinn við framboðið og vilji frekar fara og gefa öndunum. Bara hættur si svona. Og kjósendur búnir að ákveða sig.

Eiga kjósendur þá ekki rétt á skaðabótum?

Ég hef heyrt að þetta sé töluvert vandamál hjá Framsókn þar sem fólk er að segja sig af listanum sem fólk var búið að ákveða að kjósa og veit ekkert hvað það á að gera.

Mér sýnist að þessi kosningamál í Reykjavík séu öll komin í algjöran hnút, eða lykkju, ég meina snöru.

Svo finnst mér nú aðalgrínið að einungis þurfi 8 fulltrúa til að skipa meirihluta í Reykjavík í 120.000 manna byggðarlagi, einum fleiri en 7 manna samhent hreppsnefnd 460 manna sveitarfélags norður í landi.

Staðreyndin er nefnilega sú að allt frá upphafi hreppaskipunar á Íslandi árið 1281 hefur verið þjóðstjórnarfyrirkomulag í hreppum. 


mbl.is Besti flokkurinn fengi fjóra kjörna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólafur Ingi Hrólfsson

Gnarr er búinn að segja ( eða sagði ) að hann hefði engan áhuga á þvi að setjast í borgarstjórn - svo voru fleiri útgáfur af þessari yfirlýsingu þannig að vangaveltur þínar eiga fullkomlega rétt á sér.

Ólafur Ingi Hrólfsson, 30.4.2010 kl. 19:31

2 Smámynd: KRISTJÁN SVEINBJÖRNSSON

Gnarrinn leikur sér að kjósendum Reykvíkinga. Hann mun líklega halda á trompinu þegar búið verður að kjósa. Hér áður fyrr gaf hann sig út fyrir að vera Sjalli.

Kannski hefur hann þroskast og lært?  Vandamálið er þó að svona framboð er nær aldrei ein heild og klofna auðveldlega samanber Borgarahreyfinguna eða hvað hún nú heitir í dag. 

KRISTJÁN SVEINBJÖRNSSON, 30.4.2010 kl. 22:31

3 Smámynd: Þorsteinn H. Gunnarsson

Gnarrinn Sjalli? Er þetta þá dulbúið framboð frá Sjálfstæðismönnum.

Varðandi Borgarahreyfinguna þá er hún núna að láta almenning og sérfræðinga semja nýja stjórnarskrá.

Hún ætlar að eyða öllum peningunum sem hún fær út á þá þingmenn sem flokkurinn fékk í Alþingiskosningunum í það verkefni.

En hvað ætlar Gnarrin að gera? Gefa öndunum.

Þorsteinn H. Gunnarsson, 1.5.2010 kl. 08:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband