Kanínan dregin upp úr hattinum

Það væri nú saga til næsta bæjar ef þetta mál fer fram sem horfir að rétt niðurstaða komist ekki til skila vegna þess að menn eru út og suður. Djúpvitrir fræði- menn koma á blankskónum fyrir nefndina og fara yfir það sem þeir vita um fræðin sem er gott svo langt sem það nær. Engi lagaálit verði lögð fram sem fylgiskjöl þessa máls sem hægt sé að vísa í. Auðvitað verða þau að vera á lögggiltum pappír.

Svo situr þingið og semur lög og samþykkir.Svo verða málaferli eins og þau birtast okkur í veruleikanum, það verða pústrar og hrindingar og þá dregur einhver svarta kanínu upp úr ráðherrahatti og segir allt ómark, þingið var ekki rétt kjörið og verður með leiðinlegar röksemdir sem ekki eru komnar enn fram og allt í háalofti. 

Dómarar vita ekki hvað eigi til bragðs að grípa, tja nema vísa málum frá eða ógilda allt o.s.frv. Vegna lagaþurrðar eða ómöguleika einhverskonar og þá verður þingið sent heim í Strætó Kleppur hraðferð.

Allt búið.


mbl.is Vettvangsathugun á Hótel Borgarnesi á morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 18. október 2021

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband