Það hefur verið rík hefð í stjórnmálum á Íslandi að samgöngumálaráðherra væri úr dreifbýli. Ég minnist þess ekki að þéttbýlið hafi haft samgöngumálaráðherra innan síns kjördæmis. Þetta hefur einnig gilt um formann samgöngunefndar. Það var held ég fyrir fáum árum að Reykvíkingar fengu formann samgöngunefndar í sinn hlut, Guðmund Hallvarðsson.
Fyrrverandi samgönguráðherrar hafa verið duglegir að vinna að vegagerð og er nú hringvegurinn lagður bundnu slitlagi. Þá hafa göng verið boruð hér og þar, eftir því sem óskað hefur verið eftir og fjármunir lagðir til. Það hefur verið býsna sterk hugsun að efla vegagerð enda vegakerfið lengi vanburðugt og vegir varla verið forsvaranlegir, þar sem snjóalög hafa verið mikil. Allt þetta hefur þróast í rétta átt og eiga fv. samgönguráðherrar þakkir skyldar fyrir dugnað.
Við myndun þéttbýlis á Faxaflóasvæðinu hefur verið vanrækt að byggja almennilegar stofnbrautir og er nú svo komið að miklar umferðartafir myndast á álagstímun í og úr þéttbýli. Þannig hefur fólk mátt búa við það að aka innan um umferðakeilur í allt sumar í gegn um Mosfellsbæ, heima kjördæmi innanríkisráðherra, líkast því að menn séu í hægum rallýakstri. Einbreið brú er á Leirvogsá þ.e. í gagnstæðar áttir. Engin talar lengur um Sundabraut, sem væri mikil samböngubót í Reykjavík. Langar bílalestir eru austu fyrir fjall þannig að sjúkrabílar- og lögregla kæmust varla ferða sinna við slíkar aðstæður. Suðurnesjamenn verða aki inn til Hafnafjarðar, (kjördæmi innanríkisráðherra) ef þeir vilja komast á Suðurlandsundirlendi í sumarbústað.
Mér virðist einboðið að innanríkisráðherra verði að horfa til hefðarinnar og efla samgöngumannvirki í sínu kjördæmi, SV-kjördæmi, eins og kostur er, en þar eru nú 58203 atkvæðisbærir menn. Fyrir vestan væri svo hægt að laga það sem fyrir er með ofaníburði o.þ.h. en í NV-kjördæmi eru 21294 kjósendur til Alþingis.
![]() |
Gengu af fundi með Ögmundi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 20.9.2011 | 17:22 (breytt kl. 17:26) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Bloggfærslur 20. september 2011
Myndaalbúm
Okt. 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | |||
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Bloggvinir
-
Axel Jóhann Hallgrímsson
-
Bergljót Gunnarsdóttir
-
Dagrún Steinunn Ólafsdóttir
-
Grétar Mar Jónsson
-
Gunnar Rögnvaldsson
-
Hörður B Hjartarson
-
Ingibjörg Friðriksdóttir
-
Jón Páll Jakobsson
-
Jón Ragnar Björnsson
-
Kristján Hilmarsson
-
Kristján P. Gudmundsson
-
Lilja Skaftadóttir
-
Sigríður B Svavarsdóttir
-
Sigurbjörg Eiríksdóttir
-
Sigurjón Þórðarson
-
Sumarliði Einar Daðason
-
Valdimar Samúelsson
-
au
-
cakedecoideas
-
Kristinn Ágúst Friðfinnsson
-
Guðjón E. Hreinberg
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (4.10.): 0
- Sl. sólarhring: 13
- Sl. viku: 487
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 403
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar