Ekki sveitarstjórnarmál

Icesavemálið er ekki sveitarstjórnarmál.

En fyrst bæjarstjórn Kópavogs er að skora á Alþingi á annað borð, að þá væri nú ágætt að fá eina litla tillögu um að skora á Alþingi að breyta kosningalögum vegna Alþingiskosninga.

Kópavogsbúar ásamt öðrum kjósendum í Suðvesturkjördæmi hafa bara 1/2 atkvæði - sagt og skrifað hálft atkvæði - miðað við t.d.  kjósendur úr Norðvesturkjördæmi.

Það væri nú þarft að þetta yrði rannsakað, af hverju málum er svo komið varðandi kosningarréttinn.

Hvaða öfl eru það í þjóðfélaginu sem vilja hafa misvægi í kosningarétti eftir búsetu. 

Eru það Sjálfstæðismenn í SV-kjördæmi? Spyr sá sem ekki veit.


mbl.is Rannsaki Icesave-málið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Davíð sagði;

Davíð Oddsson þáverandi seðlabankastjóri sagði í Kastljósþætti, að við borgum ekki skuldir óreiðumanna.

Ég man ekki betur en það hafi verið komið bráðabirgðaálit frá EFTA að þetta gæti gengið svona.

Svo er bara svínbeygt 180 gráður.

Er ekkert mark takandi á neinum orðið.

Það þýðir ekkert að vera í einhverjum ands...... bandalögum ef Íslendingar eiga bara að lenda í höndunum á sjóræningjum svona rétt fyrir kosningar.


mbl.is Enn tími til að semja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 26. maí 2010

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband