Engir leynifundir

Færslan hér að neðan um sameiningu Frjálslyndra og Borgarahreyfingunnar er aprílgabb og ekki fótur fyrir henni.

Aftur á móti veit ég ekki alveg hvort ég hafi hlaupið 1. apríl eða ekki. En það var ríkur vilji til þess hjá mér og ég er ekki búinn að fá botn í það mál enn.

Þannig var að ég skrapp til Selfoss eftir vinnu og heyrði í útvarpinu  að það ætti að bjóða upp flotta bíla hjá Sýslumanninum í Skógarhlíð í Reykjavík. Ekkert lágmarksverð. Ég var nærri búinn að snúa við. Ég veit ekki hvort þetta var aprílgabb eða ekki. Hef ekkert séð um þetta í fjölmiðlum. Kannski verður þetta á morgunn!!!???


Leynifundir

Haft er eftir áreiðanlegum heimildum sem þykja áreiðanlegar að  Frálslyndi flokkurinn og Borgarahreyfingin séu að sameinast. Bóndi nokkur að norðan var að borða í hádeginu í Staðarskála og kom þá sunnanmaður á leið suður og ræddu þeir þetta fram og aftur. Eins hefur sést til Guðjóns Arnars vestur á Melum  á tali við forráðamenn Borgarahreyfingunnar.

Það er nærri því staðfest að þessir aðilar hafi komið út úr húsi í miðbænum. Hvort þetta sé tilfellið skal ósagt látið en Grindvíkingur sem var í bænum hafði sést drekka kaffi með Grétari Mar niður á Kaffivagninum á Granda ásamt fleira fólki sem ekki var hægt að bera kennsl á , en var mikið niðri fyrir!!

Ég hef spurnir af því að boðaða hafi verið til skyndifunda í kvöld bæði hér í bænum og víða út um land.


mbl.is Einkennilegar fréttir í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 1. apríl 2009

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband