Úkraína er hlið inn í Evrópu

Breyttir tímar. Áður fyrr var Einar Olgeirsson sendur með prjónavörur til Sovétríkjana til að hafa vöruskipti á olíu og Rússajeppum við Sovétmenn.

Nú kemur Katrín Jakobsdóttir fram í fjölmiðlum í fallegum kjól þó með rauðan hálsklút. Vel reimaða smarta skó bæði yfir ristina og langsum og ræðir stríð og varnaraðgerðir eins og reyndur herforingi hjá Atlandshafsbandalaginu. Það er nokkur munur á vinstrinu og vinstrinu.

Margur rekur stundum upp stór augu þegar spáð er í þessa breytingu. Það er nú svo í þeim leik sem kallast deilur að þegar sáttaumleitanir takast ekki tekur byssuhlaupið við. Íslendingar voru afar klókir þegar hætta vofði yfir að Þjóðverjar gætu náð Íslandi í seinni heimstyrjöldinni,en þeir voru með kafbáta í Atlandshafinu við að sökkva íslenskum fiskiskipum og drepa íslenska sjómenn, blá saklausa.

Þá voru íslensk stjórnvöld búina að tryggja að breskur her gengi hér á land til að verja landið og engu skoti hleypt af nema upp í sveit með kindabyssu Þar sem bændur skutu vikugamla kálfa af því þeir máttu ekki missa mjólkina í þá. Nóg var nú ómeðgðin í bænum.

Hermennirnir voru svo sjóveikir á leið til landsins að þeir voru máttlausir þegar þeir gengu á land að þeir hefðu tæplega geta háð bardaga ef mótstaða hefði einhver orði.

Rússar eru algerlega búnir að tapa sér. En Pútín hefur haft orð á því að yfirgangur í vestrinu væri orðin of mikill, hingað og ekki lengra. Bandaríkin stæði ekki við alþjóðlegar skuldbyndingar og þess vegna var nauðsynlegt að láta heiminn hrökkva í kút.

Svo flaut hann eins korktappi í flöskuseyti með bréfmiða í með þessi skilaboð þar sem á var rituð á miða að hann væri búin að manna allar stöður við Stóru sprengjurnar. Þannig að öll heimsbyggðin var í rauninni handjárnuð eða svo gott sem er.

Menn segja að það sé góður leikur að að lýsa yfir hlutleysi. Það er ekkert gagn í hlutleysi. Vondir menn traðka á því.

Helst vilja Íslendingar ekki taka beinan þátt í stríði og hafa haldið í þá skoðun lengi. Svoleiðis skoðun er falleg.

Það gæti komið til þess að svona sprengjuvarpa eins og þeir bera á öxlum sínum hermenn í Ukrainu gæti notast við Gerðistangavita í Atlagerðistanga á Vatnsleysuströnd, þar er útsýni fagurt til allra átta og stutt að skreppa í kaffi og graut á vaktaskiptum.


mbl.is Katrín og Þórdís á fund NATO
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fylgdarskip handa ferjunni.

Er ekki hægt að nota gömlu varðskipin sem er verið að leggja og reyna að selja sem fylgdarskip ferjunnar, tímabundið, svona til að róa ástandið?

Ferjan er orðin gömul og þarf að setja upp áætlun hvað  hægt er að gera. Farþegar verða að geta treyst því að skipið strandi ekki á skeri. Nú er sumar og blíðviðri, þannig að það þarf ekki ala á ótta.

Hef aldrei heyrt talað um afdaladalla. Finnst mér ástæðulaust að draga fallega dali og gott dalafólk inn í þessa orðræðu, sem eitthvað sem sé lélegt.

Bendi vinsamlegast á að á mínum uppeldistöðum hefur menning verið stunduð mjög lengi. Þar var fyrsta hreppabúnaðarfélag stofnað ásamt Bólhlíðingum. Lestrarfélag var mjög snemma stofnað á þessum svæðum. Einn góður karlakór átti sína frumsprota fram á Eyvindastaðarheiði, við Galtará þar sem stelpan heillaði Jónas með fegurð sinni og hann fór að greiða henni.

Þegar bændur komu til byggða og haustslátrun var af staðin, stofnuðu þeir kórinn og hefur hann  starfað síðan og fengið verlaun og orðið númer 1. í kórakeppni sjónvarpsins, Karlakór Bólstaðarhlíaðrhrepps. Í dölum norður mætir fólki fallegum bændabýlum með duglega og útsjónarsama bændur og sveitafólk. Í Blöndudal efst er nýtísku raforkuver, allt mjög flott og frágangur á umhverfi eins og best verður á kosið og meira segja ein jörð tekin af Landsvirkjun undir skógrækt.

Margt er hægt að skrifa um þessa dali, sem fólk er að reyna í reiði sinni  að uppnefna og bera saman við skip sem ætti að vera búið að gera upp eða taka af skrá. Langa kafla um fornsögurnar okkar gömlu bókmenntir er hægt að skrifa og þar fram eftir götunum.


mbl.is Smíða þurfi nýtt skip í stað Baldurs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Erum svolítið í sömu hugsun og þegar forfeður okkar fór að höggva skóginn.

Liggur ekki ljóst fyrir að þegar virkjanakostur er færður úr verndarflokki í biðflokk  þá er verið að fikta í röðinni í einhverju pólitískum tilgangi.Velja sauðagötuna eins og maður segir.

Nú er sagt að það vanti orku vegna orkuskipta. Svo er sagt að víðernin séu svo verðmæt að útlendingar komi hingað til að skoða þau. Þau séu þverrandi auðlind. Sem er hægt að draga í efa.

Auðvitað ættum við að auglýsa Reynisfjöru sem náttúrundur sem hún er og ef til vill að útskýra hverskonar náttúruundur hún er. Það er marbakkinn  sem eflir ölduna í þennan ógnarkraft sem verður fólki að fjörtjóni sem fær enga fræðslu um hvað er hér á ferðinni. Hvað er marbakki?

 Ég hef ekki kynnt mér hvaða náttúruverðmæti eru þarna á ferðinni  Skagafirði. Hef því enga skoðun á því. Uppgafst eins og gamal jálkur í Blöndudeilunni.

Öll þessi mál varðandi nýtingu náttúruauðlinda hafa haldið áfram síðan skógarhöggið hófst og lagðist af, vegna þess að skógurinn kláraðist.

Síldin hvarf, loðnan týnd, botnfiskur settur í kvóta, súrnun sjávar þannig að skeldýr ná ekki að byggja upp sína skel (humar t.d.) Engin getur svarað því hvaða afleiðingar það hefur að gelda jökulár á lífríkið, eilíft rex og pex um virkjanir. Flóamenn veittu jökulvatni á land sitt og það gerði lukku, sem ég skil ekki, þ.e.a.s. hélt að lítil frjósem væri í jökulvatni.

En svona er náttúran skrítin.


mbl.is Enginn möguleiki á umræðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Getgátur bænda ,almennigur bendlaður við sauðaþjófnað án lögreglurannsókar.

Furðulegur málatilbúnaður. Engin veit hvað hefur gerst, Bara heimatilbúnar fullyrðingar.

Það er svona sami stíllinn á þessu máli og drápið á hrossinu sem átti að hafa verið skotið innan um álftahóp sem svo reyndist rangt.

1. Lambið var sérmerkt með bláum lit. Það bendir til að það hafi verið í sértækum aðstæðum. Beinast liggur við að álykta að lambið hafi verið flegið af kunnáttumanni og verið hafi að venja lambið undir aðra kind gæti verið tvílembingur. Tæplega hafa útlendingar kunnað svona til verka auk þess að ef þeir hafi farið inn á afgirt land þá hefði féið styggst og það ætti að vekja búendur um að eitthvað hafi verið að gerast á svæðinu. Lömb villst undan og mikill jarmymur orðið. Bændur eru á vakt allan sólarhringinn og átt að taka eftir þessu.

2 Lömb á þessum aldri eru varla æt og ekki farinn að safna holdum. Eins og það sem kallast að það var bara skinnið og beinin. Það mætti alveg eins álykta að skinninu hafi verið hent út  fyrir, hundurinn dregið það út á tún eða veiðibjalla flogið af stað með það og misst það niður.

Sko það er alvega lámark að láta óvilhallan kunnáttu mann og lögreglu rannsaka mál áður en fullyrt að hér hafi verið sauðaþjófar eða útlendingar. Það átti að láta skinnið eiga sig og kalla til votta. En nú er búið að spilla sönnunargagninu og málið ónýtt. Þannig að bóndinn getur bara verið maskaralegur og veifað skinninu og sagt þessa sögu og treyst að henn  verið trúað.


mbl.is Fór inn á afgirta jörð og fláði lamb
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Við getum bara framleitt kjarnfóður okkar sjálfir í grasköglaverksmiðjunum.

Nú eiga menn að fara hlaupa við að koma með tillögur. Betra er að hugsa og flýta sér hægt, fyrir utan það að nógar upplýsingar um þessi mál skýrslur og álit.

Réttara væri að hinar mörgu stofnanir ríkisins innu þetta verk og fá Indriða H. Þorláksson til að vera vettvangstjóri.

Satt að segja lýst mér ekkert á að hafa Steingrím forustumann í þessu máli. Steingrímur er vissulega góður drengur og sennilega góður í að dansa Óla Skans og vínarkrus. Hann er bara búin að fá sitt tækifæri í málum sem varða r kvóta

En ég ætlaði ekki að fjalla um þetta mál þó sjávarútvegur komi þar eilítið við sögu. Það er mjög sorglegt að Áburðaverksmiðja ríkisins var lögð niður og allar graskoglaverksmiðurnar en ýmsar ástæður voru fyrir því og varla vikist undan því. Áburðarverksmiðjan í Gufunesi var barn síns tíma og var orðin lúin og slitið, auk þess að hún var of nærri byggð sem sífellt sótti að henni.

Gunnar Bjarnason var hugmyndaríkur maður og oft skrefi á undan öðrum mönnum. Hann talaði mikið um það þegar hann var að kenna fóðurfræði að hægt væri að nota hert lýsi og grasmjöl til að búa til innlent kjarnfóður og sáldra svolitlu fiskimjöli í blönduna.

Kandidatsritgeð mín fjallaði um Hagnýtingu fitu og nota semkjarnfóður. Gamli ráðsmaðurinn á Hvanneyri var ekki í rónni fyr en ég samþykkti þetta. Hann skaffaði allt til að það gæti orðið að veruleika. Hús gemlinga í tvo hópa og stóra hakkavél til að búa til fóðrið sem að vísu var ekki grasmjöl heldur fóður blanda, fóðurgildið var aukið með því aðmala mör í hana. Gemlingarnir fóru vel að og marktækur munur var á hópum þar sem mörinn var notaður. Engin meltingavandamál eða skita. Allt er þetta hægt, en það er ekki spretthlaup heldur langtíma hlaup.

Gunnar vildi nota hert lýsi, það er í föstuformi blandað við kornkolvetnafóður og síldarmjöl. Það var á þeim árum sem það var til, en það eru ýmsar leiðir til að nota úrgang frá sláturhúsum þó ég viti að dýralæknar standa varðstöðum um hvað má og hvað má ekki.

Svo er annað það er hægt að nota heita vatnið til að þurrka grasið og Vallhólma verksmiðjan í Skagafirði liggur mjög vel til þess að það sé hægt að setja í gang, en þar getur Steingrímur sprett úr spori með sitt lið.

Á síðast aðalfundi þegar ákveðið var að stöðva framleiðsluna í Vallhólmi af handhöfum eigandans en þeir fóru með atkvæðisréttinn margir bændur áttu hlut í verksmiðjunni því mikill áhugi var á þessu máli og ók ég víða um og fékk ekkert greitt fyrir, en skoraði á bændu að vera með.

En á aðalfundinum þegar einsýnt var að þetta væri búið fór ég með vísur eftir Pál Ólasson sem  áttu vel við svona aðstæður ekki síst núna þegar þessir erifðleikar blasa við.

Hárgreiðustaði hér má kalla

Helst þegar farið er að slá.

Gengur þá hver með greiðu og dalla

guðslangan daginn til og frá.

En svo þegar kemur kaldur, vetur

kafaldsbylur og jarðlaust er.

Biður þá hver sem betur getur

blessaður góði taktu kind af mér.

Þá segi ég, fjandinn fjarri mér,

farðu nú út og greiddu þér.

 Eftir Pál Ólafsson

 


mbl.is Ekki vanþörf á að grípa til ráðstafana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aumingjar

a)

Er hægt að binda trúss við þjóð sem fer að skjóta á nágranna sína? Ég held ekki. Og skaffar Úkraínumönnum byssufóður á vigvellinum. Og núna þegar verið er að undirbúa kornuppskeru heimsins eru ónýtir skriðdrekar og annað hernaðarrusl víðsvegar fyrir á ökrum bænda,lekandi olía í jarðveginn.

b)

Er hægt að binda trúss við þjóð, sem er ekki á hærra siðferðisstigi að hún lætur það viðgangast að skólabörnum, sjúklingum, heilbrigðisstarfsfólk og almennum borgurum er slátrað eins og búfénaði með byssum sem fólki er talin trú um að eigi að nota til nauðvarnar, fyrir borgarana. Aldrei hefur maður heyrt af slíkri frétt og eða atburður hafi átt sér. Byssueign Bandaríkjmanna er blöff og fyrirsláttur. Þeir  monta sig af þessari byssueign. Þar býr frelsið segja þeir. Svo láta þeir það viðgangast að rumpulýður sem ræðst á hið stóra ríkisþing þeirra, þar sem lýðræðið og frelsið á lögheimili að eigin sögn. Brjóta og bramlar  í skjóli fv. forseta USA. Komast undan og geta endurskipulagt sig og gert Bandaríkin stjórnlaus.

Þessi svokölluðu stórveldi eru ekkert þegar byssunum sleppir. Í mínu huga eru þetta  aumingjar.

Volodimir Selenski lýtur út eins og Fidel Castró, nema hann er lægri. Hefur framkomu og klæðaburð eins og gamli maðurinn hafði. Hann gæti verið launsonur Castró og einhverrar Guðríðar Þorbjarnardóttir okkar tíma.


mbl.is „Sigurinn verður okkar“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband