Ekki bjóst ég við þessari niðurstöðu. Miðað við yfirlýsingar sem gefnar voru í bardaganum að vilja ekki vera í aftursætinu o.þ.h.
Ekki er gott að segja hvaða áhrif það hefur að 2 efstu frambjóðendurnir séu í raun frá Akranesi en svo eru gloppur annarstaðar í kjördæminu, eins og Húnavatnssýslurnar báða. Þannig að eðlilegt er að syngja: Kátir voru karlar á kútter Haraldi til fiski veiða fóru frá Akranesi.
Ef Haraldur fer ekki á listan sýnist mér að það gerist að bændur hafi ekki fulltrúa úr stéttinni á Alþingi og hvað verður þá um orða tiltækið stétt með stétt. Raunar skil ég ekki í því að bændur hafi látið þetta gerast. Og nú er spurnig hvort komið sé að því að stofna bændaflokk. Nóg er tilefnið.
Ekki hikuðu bændur við að standa þétt saman þegar átti að hrifsa af þeim lögbundna hækkun á afurðaverði og létu það ekki ganga yfir sig. Það er ef til vill viðkvæmt að fara svona í málið, þar sem Framsónarflokkurinn er í raun tvær fylkingar og getur í raun ekki klofnað meira, svo eru þeir komnir með löggu í fyrsta sætið sem kemur alltaf annað slagið í sjónvarpið í fullum skrúða til að minna á sig og þá verða bændur óttaslegnir og far heim.
Þannig að málið er brýnt og ef til vill er þetta upphafið að falli bændastéttarinnar.
Vestfirðir voru að lenda í því sama og Húnvetningar að fá engan frambjóðanda á sitt svæði í öruggt sæti, þegar prófkjör fóru þannig hjá VG og xB í Skagafirði að efstu menn listanna eru báðir komnir með trygga þingmenn á svæðið, þannig að kjördæmið er allt að riðlast vegna skringilegra prófkjöra. Siglfirðingar hafa ekki neinn þing mann í augsýn og hafa því ekkert að gera á kjörstað og geta þess vegna farið í kaffi hvors til annars, eða niður á bryggju að veiða marhnúta.
Teitur Björn Einarsson hefur sterka stöðu til að fara fram með óháðan lista á Vestfjörðum, þó Lilja Rafney mundi saxa óvægilega í það fylgi en hún hafði vit á því að halda sínu sæti sem kom út úr prófkjörinu, en missti tryggt sæti sem var nú ekki fallegt af fólki að launa henni störf sín með þeim hætti. Svona eru prófkjörin andstyggileg, allt í tómu rugli.
Versta ruglið er auðvitað að vægi atkvæða á landsvísu er mjög mismunandi eftir hvar fólk býr og ætti að taka á því máli.
![]() |
Þórdís sigraði, Haraldur í 2. sæti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 20.6.2021 | 13:53 (breytt kl. 18:18) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Það er mikið talað um hetjur hafsins á sjómannadaginn og er það um margt skiljanlegt. Sjómenn starfa við hættulegar aðstæður, svo sem flóknar aðstæður og slysagildrur á vinnusvæði og verða að vera fljótir að bregðast við, vond veður og erfitt sjólag. Venjulegt fólk yrði skíthrætt ef það lenti í slíkum aðstæðum. Ég man að einu sinni drapst á aðalvétinn á skipi sem ég var á og var ekki hægt að gangsetja hana stax. Fóru vélstjórarnir í það að gera við. Út á miðju Atlandshafi rak skipið fyrir vindi og straumum og var ekki sjáanleg hætta á ferðum. Við vorum eitthvað að sýsla út á dekki og var samstarfsmaður minn sem var þarna á vegum einhvers sem hann þekkti,en var skráður háseti og óvanur maður úr skrifstofugeiranum. Hann rauk strax upp, hvað hvað
hvaða er að gerast,auðvitað var dauðaþögn og kyrrð utan umhverfishljóða. Skrifstofuhásetanum varð ekki um sel eins og maður segir og varð hann órólegur, en brátt fór vélin í gang og allt varð eðlilegt.
Apstæður nú hjá sjómönnum eru allt aðrar en var í dentíd framfari varðandi vinnusvæði og öryggisbúnað.
Vissulega var nauðsynlegt að sjómenn væru hugrakkir. Ekki er nú skemmtilegt að sigla innsiglinguna í höfnina í Grindavík t.d.
En hvaða er þessi óskaplega lífseig ímynd um Hetjur hafsins kominn. Er þetta eitthvað úr fornbókmenntum okkar komið, að betra væri að falla í bardaga en að verða sóttdauður, eins gæti þetta viðhorf verið um hetjur hafsins einhverskonar sjálfssefjun hugsanlegt til að þetta sé til að lyfta áskorun að vera svell kaldur sama hvað gengur á og sætta sig við að drukkna, þó mér finnist það hæpið.
Menn héldu ró sinni á Þorkatli Mána í Nýfundnalandsveðriðinu þegar allt stóð og féll með því að vera duglegur að berja klaka af skipinu svo að því hvoldi ekki vegna þessa að þyngdarpunkturinn klifraði allaf af hærr og hærra upp vegna þessarar miklu ísingar.
Aldrei er þetta orðatiltæki notað um flugmenn eða þá sem eru í hættulegri stöðu í umferðinn. Þeir eru bara kallaðir ökuþórar og í fluginu ef til vill að svífa seglum þöndum eða eitthvað svoleiðs, þó það passi ekki hjá mér. Gaman væri væri að fá einhverskonar greiningu á þessu.
Þá má ekki síður taka þá sem falla í prófkjörum, hjá Sjálfstæðisflokknum fara menn í kaffi í Valhöll og lýsa bara yfir að þeir séu hættir og séu bara sáttir. Þó það viti engin maður. Oft fara menn í það að búa til nýjan flokk eða fara með lista fram undir sínu nafni og auðvitað er það karlmannlegra.
![]() |
Sjómenn ekki farið varhluta af faraldrinum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 7.6.2021 | 11:25 (breytt 9.3.2022 kl. 17:44) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Enga frétt finn ég um umfjöllun um þáttinn á Moggavefnum og er þá ekkert annað ráð en að tengja pistilinn við frétt um að annar þáttastjórnandinn í Silfrinu Egill Helgason hefur hlotið Riddaranafnbót frá Frakklandi. Það eru tíðindi.
Það er nú ýmislegt sem gamlir jálkar eins og ég, gefa gaum þegar stjórnmálaumræðan fer á stað. Þá er fyrst til að taka hvernig sætaskiptingin er, þá kemur upp hvernig fas foringjanna er og til hverra þeir lýta hýru auga.
Umræðan var um margt skynsöm rökföst og margt gott sagt. Hægt var í upphafi þáttarins að greina að einhvern þráð sem lá í geng um alla kandídatan, samstaða og Sigurður Ingi nefndi samvinnu sem lengi eftir að SÍS gamla lenti í Hömlum hjá Landsbankanum mátti ekki nefna.
Held að það hafi verið Pestin Covid sem hefur gengið. Allir voru hræddir um að deyja, því engin þekkti pestina. Var þetta nýr Svartidauði eða Spænska veikin? Því þurftu allir að standa saman, nema undir það síðast að ýmsir vildu fara í mál til að verja frelsið. En það mál er utan við þessa umræðu.
Yfir það heila hafði maður á tilfinningunni að það fólk sem sat í stólunum væri gott fólk, sem vildi þjóð sinni á allan hátt vel.
Í gamldaga vildu menn í svona umræðu hafa hasar og almennilegan bardaga, þar sem sveið undan atlögunum. Hægt er að nefna Einar Olgeirsson Bjarna Benediktsson eldri Gylfa Þ. Gíslason Ólaf Jóhannesson Hannibal Valdimarsson, já, Ólaf Ragnar Grímsson hann var skilminga þræll eins og allir framangreindir menn. Nú var þetta allt áferðar fallegra engin vildi þeysa fram með stór orð því þjóðin var að horfa á og tók eftir öllum hreyfingum og var fljót að leggja á minnið hvað var sagt og hverju var lofað. Hver og einn var undir búinn að taka þátt í umræðunni, ef til vill búin að fá tilsögn hjá almannatengli um hvernig ætti að taka á málum. Flokkurinn borgar.
Stjórn þáttarins var í taustum höndu og unnu þáttastjórnendur hlutverk sitt með sóma, gott að hafa 2, ef annar gefst upp þá getur hinn tekið við, skotið sér milli stafs og hurðar til að leiða umræðuna í réttan farveg svo ekkert fari í glundroða og stjórnleysi, Þetta virkaði eins og í fluginu. Aldrei kom upp sú staða sem gerist oft í réttum þegar hundar lenda í áflogum að gipið er til þess ráðs að ganga inn í miðja þvöguna og og taka í lurginn á verstu áflogaseggjunum og henda þeim út úr þvögunni, þá er allt búið.
Það mátti heyra að flestir ef ekki allir voru á því að Samherjamálin væru óforsvaranleg og gætu komið sterkt inni í kosningaumræðuna. Bjarni Benediktsson yngri tók stýft fram, að veldi og afl Samherja hefði ekkert með fiskveiðistjórnunarkerfið að gera, þó setti Logi Einars og fleiri, skýrt fram að það væru nú einmitt möguleikin á að safna auði í gegn um kerfið sem gerðið útslagið að Samherji treysti sér til að reyna að fikta við formannskosningu í Blaðamannafélagi Íslands og einnig, að hafa með einhverjum hætti áhrif á prófkjör Sjálfstæðismanna í N-Austurkjördæmi, sem virðist hafa verið hrundið af Sjálfstæðismönnum. Þá taldi Logi að venjuleg skattaálögur á launamenn og almenning næðu ekki að dekka þarfir nútíma samfélags fyrir fjármunum og þar þyrfti í framtíðinni að horfa til skattlagnigar auðmagnsins og hverskonar arðs, sérstaklega þegar farvegur auðsins lægi í gegn um hverskonar auðlinda sem tilheyrðu almenningi.
Katrín gerði vel grein fyrir að allskonar auðlindir væru á dagskrá sem ný tækni setti á sviðið t.d vindorkugarðar. Katrín er búin að ná yfirburða tökum á að gera sig gildandi og vel leiðandi sem Fósturlandsins Freyja , búin að losa sig við kanínubrosið. Í staðin komnar markvissar leikfimiæfinar með höndum, sem fer henni vel samfara öruggri og fasmikillri framkomu. Það er nær örrugt að margir líta á hana sem fyrsta valkost um forustu. Fundið hefur verið að samstarfi VG við Sjálfstæðis og Framsóknarflokka. Stundum getur verið gott að sitja við hlið andstæðingisins og vita hvað hann er að hugsa og bauka.
Innganga í Evrópusambandið komst lítt á koppinn nema Þorgerður Katrín gat aðeins talað um örmynt okkar og veikleika hennar í alþjóðlegu samhengi. Þorgerur ætti að taka það upp að syngja Nallann því hann er leiðsögn um inngöngu í Evrópu samstarf. Samanber: Þó að framtíð sé falin grípum geirinn í hönd því Internaionalinn mun tengja strönd við strönd,--- eftir að verkalýshreyfingar um allt sviðið hefur gripið geirinn í hönd.
Píratinn skaut víða föstum skotum, Píratar eru nauðsyn í stjórnmálaflórunni til að spyrja þungra spurninga og gera athugasemdir um mannlífið og lagasetningu.
Inga Sæland formaður flokks fólksins sem vildi að fátækt yrði útrýmt. Hún komu ágætlega út og minnti á gömlu kempurnar og er orðin ágætlega sjóuð og virðis gera sér grein fyrir sínum takmörku við svona aðstæðum og hleypur ekki svo glatt á sig. Vel málifarin að gömlum hætti.
![]() |
Egill hlaut riddaranafnbót frá Frakklandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 2.6.2021 | 08:18 (breytt kl. 13:04) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Myndaalbúm
Bloggvinir
-
Axel Jóhann Hallgrímsson
-
Bergljót Gunnarsdóttir
-
Dagrún Steinunn Ólafsdóttir
-
Grétar Mar Jónsson
-
Gunnar Rögnvaldsson
-
Hörður B Hjartarson
-
Ingibjörg Friðriksdóttir
-
Jón Páll Jakobsson
-
Jón Ragnar Björnsson
-
Kristján Hilmarsson
-
Kristján P. Gudmundsson
-
Lilja Skaftadóttir
-
Sigríður B Svavarsdóttir
-
Sigurbjörg Eiríksdóttir
-
Sigurjón Þórðarson
-
Sumarliði Einar Daðason
-
Valdimar Samúelsson
-
au
-
cakedecoideas
-
Kristinn Ágúst Friðfinnsson
-
Guðjón E. Hreinberg
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.9.): 3
- Sl. sólarhring: 7
- Sl. viku: 292
- Frá upphafi: 600470
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 253
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar