Endurskoða samþykktir verkalýðsfélagana.

Það ætti nú að vera auðvelt að bæta úr þessu, með því að setja inn í lög og samþykktir verkalýsfélagana ákvæðu um kosningu eftirlits fólks til setu til eftirlits um Seðlabanka Íslands og aðrar fjármálastofnanir sem félagð hefur lögbundið eftirlit með. Væri þá hæg að fá valinkunna sóma menn sem væru færir í bókhaldi sem þyrftu ekki að vera í félaginu, svo sem gamla sparisjóðsstjóra, fv. endurskoðendur kaupfélaga eða aðra þá sem aðalfundir treysti í þessi verk.

Í rauninni þurfa félögin ekki að hafa áhyggjur af kostnaði þar sem fundarþóknanir eru borgaðar af viðkomandi fjármálastonun. Því væri hægt að fá sérfræðinga að, til að gæta þessarar hagsmuna án staðsetnigar, það er svo móðins núna.


mbl.is „Hrekja venjulegt fólk út úr stjórnunum“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þarf ekki að fá upp á yfirborðið stefnumarkmið þessa skæruliðahóps?

Væri nú ekki rétt og skylt af yfirvöldum að upplýsa hvert stenumarkmið þessa skæruliðahóps er, til að auðvelda fólki til að mynda sér skoðun á málefninu.

Það þarf að teikna upp glögga mynd af málinu. Það er ástæðulaust að hópurinn sé í reyfum og umkomulaus.

Margar sviðsmyndir hafa svo sem verið dregnar upp í þáttunum  Verðbúðin sem sumir kannast við aðrir ekki.

Þetta þarf að gera til að glöggva sig á öllu málinu.

Best væri ef hægt væri að vera með einhverskonar gagnstefnu.  Þar sem persónur og leikendur væri gert að koma í yfirheyrslur hjá lögreglu, jafnvel að gefa þeim tækifæri til að tjá sig um stykkið. Þeim væri engin vorkun að mæta.

Þá yrði nú hátíð í bæ og sjó. Gráupplagt væri að vera með einþáttung á stórasviðinu á Granda á Sjómannadaginn þar sem varpað væri ljósi á málavexti heilstætt.

Verður hópurinn leystur upp eða hvað framtíð á hann fyrir sér?

 


mbl.is Engin innistæða fyrir uppþoti vegna skýrslutaka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svipuð atvik hjá Íslendingum. Rakettum skotið á loft og valdamenn í hnökkum til sýnis.

Íslenskir valdamenn eru í svipuðu hugarástandi og vilja sýna sig almenningi á hestum.

Man eftir mynd sem birtist af Páli Péturssyni, Stefáni Guðmundssyni og Guðna Ágústssyni á landsmóti í Víðidal þar sem þeir stilla sér upp á hestum til að láta taka mynd af sér.

Enn er verið að skjóta rakettum á Íslandi, dýrum til skelfingar og ætlar Landinn seint að læra að taka tillit til dýra, hvað þetta varðar.

Kim Jong-un Norður Kóru hinn mikli leiðtogi er glæsilegur á myndbandi sem var sent út til að upplýsa þjóðina um þennann mikla leiðtoga og sjálfsagt hafa margar meyjarnar grátið svolítið. Svo eru þeir með risarakettu sem þeir skjóta upp og áfram er haldið að gráta af hrifningu.

Enginn grét eða hló, það ég veit best, þegar Framsóknarmenn stilltu sér upp í Víðdal hér í denn og voru þeir þó ágætlega klæddir og maskaralegir. Ég held að þeir hafi verið á lánshestum. Alla vega átti Páll á Höllustoðum ágæta grá gæðinga hann er látinn blessuð sé minning hans og Stefáns einnig. Stefán er í landsfrægri hestafjölskyldu. Fallegir hestar munu enn vera til staðar til að halda minningu þeirra á lofti. Ekkert veit ég um Guðna í þessum efnum. Hann stendur einn eftir í mannhafinu og grætur hvorki né hlær, en hann er mikil jaxl eins og Skarphéðinn á Berkþórshvoli.

Það var einhver sem spurði Guðna hvernig veðrið hefði verið á 1000 ára afmæli kristninnar á Þingvöllum.  'Arið 2000 var þar blíðskapar veður, hvernig var veðrið Kristnitökuárið? Það var þungbúið svaraði hann háum og þungum rómi.


mbl.is Á hvítum hesti í áróðursmyndbandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband