Bóndinn að Rein á Akranesi

Í Íslandsklukku Halldórs Laxness er sagt frá því þegar Jón Hreggviðson var á ferðalagi í Hollandi og fór  hann að leita sér næturstaðar þar sem kvöld  var komið.

Hitti hann þá konu nokkra kankvís og viðræðugóða sem spurði bónda tíðinda. Þau tóku tal saman og bauð konan bónda greiða. Konan áttaði sig á að bóndi átti peninga og varð konan enn hupplegri við bónda en áður. Fannst Jóni konan vera jafnoki kvenna á Íslandi eins og þær gerast bestar. Var hún þrýstin og vel í holdum. Jón var  farið að gruna að þetta væri prestkona eða prófasts.

Hann lét hana skilja að hann væri orðin hungraður. Konan fór í búrið og kom með steikur, brauða og ost og jarðávexti ásamt vín í krús. Þótti Jóni hann ekki í annan tíma fengi betri málsverð.

Konan át honum til samlætis.  Á eftir sarð hann konuna.

Þetta hefur mér alltaf þótt skemmtilegasta saga af ferð í pútnahús. Vissulega eru þær margar sögurnar sem íslenskir farmenn geta sagt frá. En látum hér staðar núna til að eingin misskilningur fari á stað.


mbl.is Krepputilboð á vændishúsum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband