Höfðingjar af Snæfellsnesi

Bankastjórarnir fv,í Kaupþingi, eru að reyna að snúa stöðunni við í sínum málum.

Ráðast að dómurum eins og um stjórnmálabaráttu sé að ræða og sérstakur fær það óþegið.

Þetta er samkvæmt formúlunni að sókn er besta vörnin og betra er að veifa röngu tré en aungvu.

Ég vil nú helst að það sé réttarríki á Íslandi og sakborningar fái réttláta málsmeðferð.

Mér er kunnugt um að hér varð hrun og ýmislegt gerðist sem þarf að upplýsa og fá niðurstöðu í.

Öll þessi mál eru viðamikil og flókinn og erfitt fyrir almenning að vita hvað snýr upp eða niður í þeim.

Fyrr en varir verða sakborningarnir búnir að telja alþýðu mann á sitt band og ekki kæmi mér á óvart að þeir keyptu Hvamm og Sauðafell í Dölum og gerðust höfðingjar á Vesturlandi jafnframt setu sinni á Kvíabryggju.


mbl.is Sigurður Einarsson mættur í dómsal
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Einn þeirra þarf ekki að kaupa núna, hann á þegar eitt stykki sveitarfélag með öllu sem fylgir og fylgja ber.

Sauðamaður (IP-tala skráð) 5.5.2015 kl. 15:22

2 Smámynd: Þorsteinn H. Gunnarsson

En ekkert goðorð eða hreppsnefndarembætti væntanlega.

Þorsteinn H. Gunnarsson, 5.5.2015 kl. 15:44

3 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Hlýtur að vera slæmt fyrir saksóknara að þurfa að hlýða á svívirðingar dæmdra glæpamanna og mega ekki svara fyrir sig.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 5.5.2015 kl. 20:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband