Hver er Hrói Höttur?

Mál eru nú farin að gerast æði flókin fyrir almenning að átta sig þarna í Fjármálaeftirlitinu.

Hæstaréttarlögmenn eru kallaðir á vettvang til að rýna í álitsgerðir hæstaréttarlögmans um meint vanhæfi forstjóra FME fyrir langalöngu. Þeir segja ekkert lögbrot framið en málið frekar af siðfræðilegum toga. Þá dettur manni helst í hug að prestar hefðu átt að ganga í málið.

Svo kemur upp úr dúrnum að litli Landsbankamaðurinn hafi guðað á glugga hjá Gunnari með einhverja pappíra um fjárhagsmálefni alþingismanns, þegar allir voru háttaðir og búnir að fara með Faðirvorið.

Gunnar segir að það sé fjarstæða hann hafi engin slík gögn séð.

Svo kærir stjórn FME eitthvað sem ekkert er, að því er virðist og engin veit neitt.

Svo setja menn öðrum mönnum fresti fyrir miðdegikaffi og þá eru menn allt í einu reknir fyrir morgunkaffi.

Svo segja menn bara eins og ekkert sé, við hittumst bara hjá dómaranum, lagsmaður. Eins og þar sé eitthvert félagaheimili.

Er nema von að almenningi sé brugðið.


mbl.is Er brugðið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta mál er stöðugt að gerast athyglisverðara, sérstaklega hvað varðar sjálfstæðismenn.  Svo mætti halda að það séu einmitt sjálfstæðismenn sem hafa haldið í taumana á stjórnarformönnum fjármálaeftirlitsins!

Nýjustu fréttir herma að Gunnar var í því að rannsaka Guðlaug Þór Þórðarson, og Guðlaugur segist koma af fjöllum um þetta mál :)

Hérna er stórt hneyksli í afhjúpun og augljóst að ekki er öllum kátt hjá sjálfstæðismönnum og frammsókn.

J.

Jonsi (IP-tala skráð) 1.3.2012 kl. 20:52

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Þetta lyktar æ meira af samsæri einhverja að losna við óþægan ljá úr sinni þúfu.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 1.3.2012 kl. 23:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband