Bandarískt herskip sprengt í loft upp

Á 19 öld áttu Kúbubúar í stríði við Spánverja en Kúba var nýlenda Spánverja. Árið  1868 hófst vopnuð uppreisn, bardagar stóðu í 10 ár, en að lokum tókst Spánverjum að brjóta uppreisnina á bak aftur.

1895 hófu Kúbubúar nýja uppreisn undir forustu José Martí. Á næstu tveim árum kom í ljós að Spánverjar myndu ekki lengur geta haldið þessari síðustu fótfestu sinni í Ameríku.

Ýmsir höfðu uppi áróður fyrir því að Bandaríkin skærust í leikinn og hrektu Spánverja frá Kúbu, en Bandaríkjastjórn skorti átyllu. Hún fékkst þegar bandaríska herskipið Maine var sprengt upp í Havannahöfn 15 febrúar 1898.

Þessi sprenging er einn af leyndardómum mannkynsögunnar.

Spánverjar neituðu harðlega að þeir hefðu átt nokkurn þátt í sprengingunni, enda var þeim  það síst í hag að Bandaríkin skærust í leikinn.

Heimild: Magnús Kjartansson, Byltingin á Kúbu bls. 96


mbl.is Gengu út undir ræðu Íransforseta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband