Búvörusamkeppni fyrir framan stjórnarráðið

Einn á ferðÞað er alltaf skemmtilegt þegar Jón Bjarnason landbúnaðarráðherra er í glímunni við fréttamenn fyrir framan stjórnarráðið. Þar er hann gjarna tekinn tali um búvörufrumvarp sitt og samkeppni á búvörumarkaði. Síðast þegar ég sá hann varðist hann mjög fimlega spurningu frétta manna um störf sín og svaraði jafna þegar hann var spurður; ,, Ég ber ábyrgð", svona gekk þetta í ein sjö skipti og aldrei hrökk Jón niður af tröppunum.

Nú nýlega var gerð mikil orrahríð að honum fyrir framan stjórnarráðið vegna frumvarps hans um búvörusektir og einokun í framleiðslu mjólkur. Þá lendir hann í þeirri sérkennilegu stöðu að villast á bílum og vera nærri kominn inn í vitlausan ráðherrabíl. Það hefði nú verið saga til næsta bæjar ef honum hefði verið ekið upp í viðskiptaráðuneyti og hann ekki vitað af sér fyrr en hann hefði verið sestur í stól viðskiptaráðherra.

Stjórnsýslan þarf vitaskuld að taka það til athugunar hvort ekki sé hægt að merkja ráðherrabílana svo ekki sé hætta á að ráðherrar villist upp í rangan bíl og lendi upp einhverju ráðuneyti sem þá langa alls ekki að koma í.

Hægt væri að hugsa sér að það væri mynd af viðkomandi ráherra  á bílnum eða önnur kennileiti sem ráðherra gæti glöggvað sig á.

Eðlilegast og nærtækast væri að bíll landbúnaðarráðherra væri með merki Bændasamtakanna. Þá væri öruggt að Jón mundi ekki villast á bílum.


mbl.is Bændur telja frumvarp til mikilla bóta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband