Eldsmatur til sveita

Það er að verða árviss atburður að búpeningur kafnar í eldsvoða. Í þessu tilfelli kafna 200 landnámshænsni.

Það verður fróðlegt að fylgjast með því þegar skýrsla um brunavarnir og orsakir eldsvoðans verður birt.

Í Eyjafirð drápust 200 nautgripir í nóvember 2007. Á Suðurlandi drápust um 200 nautgripir í bruna. Á Snæfellsnesi brunnu inni 400 fjár fyrir nokkrum misserum eftir því sem ég best veit.

Árið 2009 í nóvember hélt Dýraverndarsamband Íslands málþing um ábyrgt búfjárhald. Það var ekki fjölmennt en umræður ágætar og skynsamlegar.

Þar reifaði ég og skilaði til stjórnarinnar, smá skýrslu, að eigin frumkvæði, um fjósbruna þar sem 200 nautgripir brunnu inni. Var þetta atvikalýsing á framvindu málsins ,að mínu áliti, og það sem raunverulega gerist og ófullnægjandi brunavarnir og öryggi við eldsvoða.

Það er vafalaust víða pottur brotinn hvað varðar brunavarnir í útihúsum til sveita, en þó hef ég spurnir af því að verið er að vinna í lagfæringum þar að lútandi.

Það kom einmitt fram á þessu málþingi hversu óskynsamlegt það væri að vera með stór gripahús og allt í einu rými í staðin fyrir að hólfa húsin eitthvað niður.

Endalaust er hægt að ræða þessi mál og vonandi fara menn í það að lagfæra brunavarnir í útihúsum til sveita, því hér eru miklir efnahagslegir- og dýraverndarhagsmunir í húfi.

Ég votta bóndanum á Tjörn á Vatnsnesi samúð mína yfir því að missa þarna verðmætan stofn landnámshænsna.


mbl.is Útihús brunnu og hænur drápust
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband