Skýrt var frá því í fréttum nýlega af Gísla fréttamanni frá Borgarnesi að refur hefði sést þar í þéttbýli og hefði verið að reyna að komast út í Brákarey en þar er fuglavarp. Refaskyttur hefðu verið kallaðar út og sérstakt leyfi verið fengið frá sýslumanni til að vinna á dýrinu. Endaði málið svo að minkahundur vó refinn. Til málsvarnar refnum má segja að hann var þarna á vegum Náttúrunnar við skyldustörf.
Í ljóði Jónasar Hallgrímssonar ,, Ég bið að heilsa " er ort um,, vorboðann ljúfa " sem er þröstur, tákngerfingur fyrir fuglalíf söng og vorkomuna. Fuglasöngur að vori og ætíð, hefur verið talið til lífsgæða.
Víða í þéttbýli er fuglasöngur að hljóðna. Hversvegna? Jú það ganga kettir lausir og gjörsamlega eyða öllu fuglalífi á stórum svæðum. Er þessi váboði jafnvel verri en minkurinn.
Sérstakir viðhafnar stigar eru reistir við glugga og svalir fjölbýlishúsa og annarra húsa þar sem þessir kettir eiga heima. Síðan geta þeir verið á veiðum heilu næturnar út í vorinu og rústað fuglalífi og hreinsað úr hreiðrum þar sem ungar eru að komast á legg.
Lausaganga katta er ljótur blettur á vistkerfi borga og bæja og ættu stjórnvöld að taka þessi mál til athugunar og láta ketti sæta sömu reglum og t.d. hundar, en þeir mega ekki vera lausir á almannafæri í þéttbýli.
Hér er verk að vinna fyrir fuglaverndarfélög og allan almenning sem unna fuglasöng að vori.
Að settum ströngum reglum geta svo kettirnir legið malandi inni í stofu og lapið rjóma hjá eigendum sínum og haft það sem þægilegast, eigendum sínum til ánægju, en almenningi að meinalausu.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | 1.6.2009 | 20:04 (breytt 7.3.2010 kl. 19:48) | Facebook
Myndaalbúm
Bloggvinir
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Bergljót Gunnarsdóttir
- Dagrún Steinunn Ólafsdóttir
- Grétar Mar Jónsson
- Gunnar Rögnvaldsson
- Hörður B Hjartarson
- Ingibjörg Friðriksdóttir
- Jón Páll Jakobsson
- Jón Ragnar Björnsson
- Kristján Hilmarsson
- Kristján P. Gudmundsson
- Lilja Skaftadóttir
- Sigríður B Svavarsdóttir
- Sigurbjörg Eiríksdóttir
- Sigurjón Þórðarson
- Sumarliði Einar Daðason
- Valdimar Samúelsson
- au
- cakedecoideas
- Björgvin Þangbrandur "Birkirmár" Gíslasson
- Guðjón E. Hreinberg
- Kristinn Ágúst Friðfinnsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.12.): 427
- Sl. sólarhring: 454
- Sl. viku: 1228
- Frá upphafi: 570525
Annað
- Innlit í dag: 382
- Innlit sl. viku: 1096
- Gestir í dag: 361
- IP-tölur í dag: 355
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Já þetta er til skammar.Ég hef tekið eftir bjöllulausum köttum skokka um með vorboðann ljúfa í andarslitrunum.
SAMÞYKKT
um kattahald í Reykjavík.
10. gr
Tillit til fuglalífs á varptíma.
Eigendum og umráðamönnum katta ber að taka tillit til fuglalífs á varptíma, t.d. með því
að hengja bjöllu á ketti og eftir atvikum takmarka útiveru katta.
Það á að kæra eigendur þessara katta.Birgir Hauksson (IP-tala skráð) 2.6.2009 kl. 21:46
Já þetta gengur ekki lengur. Þeir hljóta að athuga þetta hjá borginni. Þetta er í raun alger svívirða gagnvart fuglalífi.
Þorsteinn H. Gunnarsson, 2.6.2009 kl. 22:21
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.