Flestir bændur fylgjast með veðri og veður útliti og er bloggari engin undantekning þar. En hvað um rannsóknir og skýrslur sérfræðinga?
Bloggari telur sig hafa tekið eftir nokkrum breytingum á brautum lægða og hæða í nær því tvö ár.
Hingað til hafa lægðir komið að Reykjanesi eða Vesturlandi og farið yfir landið í austur. Þá hefur oft verið háþrýstisvæði yfir Grænlandssundi.
Undanfarin tvö ár, hafa lægðir oftast komið upp að landinu við Reykjanes og haldið svo yfir á mismiklum hraða yfir landið austur úr. Hæðir hafa oft komið suður úr Atlantshafi og brunað upp Atlantshafið og dinglað sér við Austurland og stigið þar dans við lægðir sem koma að vestan og þessi veðurkerfi hafa verið til vandræða þar. Oft eru menn hissa á svona skotum þegar einmunatíð er búin að vera um langa tíð. Komið hefur fram í fréttum að Atlandshaf er að hlýna.
Skrifari man þá tíð þegar gengið var til ánna, þar sem fé var í aðhaldi og farið tvisvar til ánna á sólarhring. Kom þá fyrir að taka þurfti eina og eina kind heim, oftast vegna þess að lömb komust ekki á spena. Það var leiðindaverk að sýsla við þau verk og varð oftast að bera lambið hálf boginn heim í hús og ærin var óróleg og oft fum á henni. Stundum þurfti að koma með lambið inn í eldhús, svo það fengi smá hlýju í sig og mjólk að sjúga með lagni og var lambið oft búið að missa sogið, en allt þetta lukkaðist.
Skrifari man eftir einu svona skoti, a.m.k. einu sinni á árunum 1955-1960. Dagsetning gæti verið um 17.júní, en þá var kominn snjór í skóvarp á spariblettum og góð slægja.
Hlutirnir gátu farið að fara úr skorðum þegar farið var að vetrarrýja, þá missti ærin ullina sem skýldi henni og lömbin misstu bólið sitt ofan á ánni. Oft tóku gætnari bændur þann sið að hálf rýja.
Allt þetta var gert til að vinna við leiðinlegan rúning í byrjun sláttar gæti betur hafist fyrr. Eitt sinn í byrjun búskapar bloggara var rúið við afréttargirðingu. Smölun heimalanda og fjárrag gert í samvinnu.
Eitt sinn kvartaði bloggari um að hafa fátt að rýja, átti enda ekki margt. Þá sagði nágranni minn á Höllustöðum: "Hún er hæg fátæktin". En það tók nú skjótt enda.
Skrifari hefur ekki legið yfir veður skýrslum, en gaman væri að fá fram álit veðurfræðinga á því hvort eitthvað sé að breytast í veðurfari, því oft þegar svona hret koma á óvart er rokið til að fá samþykkt á Alþingi auka fjárveitingu, þó Bjargráðasjóður sé með nóg fjármagn til að styrkja áföll vegna ótíðar og vanhalda. Það hefur bloggari gaumgæft, og sannast þar hið fornkveðna að engin er búmaður, nema að hann berji, sér.
![]() |
Þetta er bara hrikalegt vanmat og hugsunarleysi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | 4.6.2025 | 19:38 (breytt kl. 20:09) | Facebook
Myndaalbúm
Júní 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 |
Bloggvinir
-
Axel Jóhann Hallgrímsson
-
Bergljót Gunnarsdóttir
-
Dagrún Steinunn Ólafsdóttir
-
Grétar Mar Jónsson
-
Gunnar Rögnvaldsson
-
Hörður B Hjartarson
-
Ingibjörg Friðriksdóttir
-
Jón Páll Jakobsson
-
Jón Ragnar Björnsson
-
Kristján Hilmarsson
-
Kristján P. Gudmundsson
-
Lilja Skaftadóttir
-
Sigríður B Svavarsdóttir
-
Sigurbjörg Eiríksdóttir
-
Sigurjón Þórðarson
-
Sumarliði Einar Daðason
-
Valdimar Samúelsson
-
au
-
cakedecoideas
-
Björgvin Þangbrandur "Birkirmár" Gíslasson
-
Guðjón E. Hreinberg
-
Kristinn Ágúst Friðfinnsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (6.6.): 7
- Sl. sólarhring: 104
- Sl. viku: 729
- Frá upphafi: 584184
Annað
- Innlit í dag: 5
- Innlit sl. viku: 644
- Gestir í dag: 5
- IP-tölur í dag: 5
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning