Sigurður Ingi er alveg gáttaður á þessu vinnulagi hjá atvinnumálaráðherra að ætla sér að fara að veiða meira en lagt er til í ráðgjöf Hafró. Ef til vill hefur hann eitthvað fyrir sér í því en hvort það setji allt um koll er ég ekki viss um. En líklega vilja stjórnvöld ekki taka þessi tonn af stórútgerðunum, það er ef til vill ekki rétt að gera það. Staðan er svo viðkvæm.
En í tilefni Sjómannadagsins á morgun þegar allir eru glaðir, sjómenn komnir í hvíta skyrtu með bindi og hatt og í rykfrakka, eins og í gamladaga langar mig til að hugsa málið í aðra átt. Þ.e.a.s. að hrinda af stað og hefja einhverja umræðu um fiskeldi, það er að ala upp þorskseiði, hvort það væri mögulegt að koma því í gang. Margir muna ef til vill að einhversstaðar í barnaskóla eða á þeirri braut, var sagt að eitt stykki þorskhrygna væri með 10 þúsund hrogn sem hún léti frá sér.
Það væri nú akkur í því að láta skoða það hvað væri hægt að gera í þeim málum. Ég bara þekki það ekki
Hún er vogskorin strandlengja Íslands og dýrmæt, hægt að hafa margskonar rannsóknir seiðaeldi á fínum stöðum, víða nóg af dýrmætu tæru vatni, bæði heitu og köldu.
Nú ætti Sigurður Ingi að fara til atvinnumálaráðherra og leggjast á hné og bjóðast til að ganga með honum í þetta verkefni.
Sigurður hefur góðan grundvöll í menntun sinni til að hafa innsýn í þessi mál þannig að þar yrði engin hringavitleysa á ferðinni, bara tær snilld.
Víða um land eru fjárhús með djúpum kjallara oft fjórskiptum og það væri betra að hafa bændur við störf í svona vinnu eða rannsóknarverkefnum þar sem aðsæða væru á bújörð. Það væri dýrmætt að vinna í svona nýjung sem er þó öll þekkt í fiskeldi, bleikju og laxi.
Sko, framtíðin er okkar með dýralækninn og atvinnumálaráðherra í stafni og kjarkmiklar konur sem stundum fara oft ansi hratt yfir en vilja gera vel, og eru ef til ekki áhugasamar um bardaga og málþófs menningu, sem gerir ekkert gagn, frekar að reyna að hugsa eitthvað snjallt og viturlegt.
![]() |
Hringavitleysa sem er ekki hugsuð til enda |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | 31.5.2025 | 11:25 (breytt kl. 11:25) | Facebook
Myndaalbúm
Júní 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 |
Bloggvinir
-
Axel Jóhann Hallgrímsson
-
Bergljót Gunnarsdóttir
-
Dagrún Steinunn Ólafsdóttir
-
Grétar Mar Jónsson
-
Gunnar Rögnvaldsson
-
Hörður B Hjartarson
-
Ingibjörg Friðriksdóttir
-
Jón Páll Jakobsson
-
Jón Ragnar Björnsson
-
Kristján Hilmarsson
-
Kristján P. Gudmundsson
-
Lilja Skaftadóttir
-
Sigríður B Svavarsdóttir
-
Sigurbjörg Eiríksdóttir
-
Sigurjón Þórðarson
-
Sumarliði Einar Daðason
-
Valdimar Samúelsson
-
au
-
cakedecoideas
-
Björgvin Þangbrandur "Birkirmár" Gíslasson
-
Guðjón E. Hreinberg
-
Kristinn Ágúst Friðfinnsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (1.6.): 173
- Sl. sólarhring: 188
- Sl. viku: 1340
- Frá upphafi: 583897
Annað
- Innlit í dag: 166
- Innlit sl. viku: 1209
- Gestir í dag: 161
- IP-tölur í dag: 161
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning