Hvað er leiðrétting á veiðigjöldum?

Útgerðarmenn og sveitarstjórnarmenn eru sí og æ að reyna að rugla almenning í ríminu, sí og æ, hvar sem maður hittir mann.

Reynt er að halda því fram og reyna að lauma því inn í umræðuna að þetta sé skattur á landsbyggðina. Það er ekki heiðarlegt. Það kemur engin krafa með peningalegri upphæð um að greiða þessi til sveitarfélaga. Eins og laxveiðimenn þurfa að borga bændum fyrir veiðileyfið þá þarf að borga veiðigjöld.  Ég skal segja hver verður fyrir missi, það eru ekki sveitarfélög. Það geta verið hjón í Vesturbænum eða á Akureyri.

Rekstrarreikningur fyrirtækja samanstendur af tekjum og gjöldum. Þar eru gjaldfærðar afskriftir, oft 10% af vélum og búnaði til að nota til að endurnýja þau tæki og tól sem notuð eru við að afla verðmæta. Þau verðmæti eiga að fara inn á reikning svo þau geti verið til staðar þegar á þarf að halda.

Það sem verður eftir á rekstrarreikningi kallast hagnaður. Hugsanlega verða hluthafar af verðmætum og fá ekki nógu góðan hagnað í sinn hlut, þannig að það eru fjármagnseigendur sem verða af minni gróða. Skipið fær að veiða allan sínn kvóta. Þetta er galdurinn.

Það verður sem sagt ekki hægt að kaupa búð á Oxfordstræti, það verður ekki hægt að kaupa neina búð á næsta ári, svona fara þeir að þessu þessir kónar eins og Sverrir gamli Hermanns kallaði þá. Blessuð veri minning hans

 


mbl.is Rekur fleyg í samstarfið innan Viðreisnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Þetta er ekki leiðrétting á veiðigjöldunum sjálfum heldur á gjaldstofninum sem gjöldin eru reiknuð af.

Sambærilegt við fasteignagjöld. Á minni íbúð hefur hlutfall þeirra verið það sama árum saman en samt þarf ég að greiða hærri upphæðir á hverju ári, ekki vegna þess að gjaldhlutfallið hafi breyst heldur vegna þess að gjaldstofninn (fasteignamatið) hefur hækkað.

Ég gæti því verið ósáttur við hækkandi fasteignagjöld af svipuðum ástæðum og útgerðarmenn eru ósáttir við hækkun veiðigjalda. Eða ég gæti sagt að ég vorkenni þeim ekki neitt þó gjaldstofn þeirra hafi hækkað af ástæðum sem þeir stjórna ekki sjálfir, rétt eins og ég hef enga stjórn á fasteignamatinu og hef engan hagnað fengið af hækkun þess því ég þarf að búa einhversstaðar og get því ekki innleyst neinn "hagnað" með því að selja íbúðina. Verið velkomnir í borð um sama "bátinn".

Guðmundur Ásgeirsson, 11.4.2025 kl. 21:15

Bæta við athugasemd

Hver er summan af sex og fjórtán?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband