Fyrirfram dómur

Lögregluforingin er farinn að gefa hér einhverja frípappíra. Held að það sé nú dómstóla og saksóknar að gera út um þetta mál.

Málið þarf að rannsaka alveg upp í ríkistjórn að ráð- herraborði. Hvað ætli tryggingafélögin leggi til málsins.

Hvaða lög gilda um íshella og allmanna ferðir á þeim slóðum. Svona mál eru alveg hræðileg fyrir alla sem koma þar við sögu. Verið er að rústa orðspori íslenskrar ferðaþjónustu og dugar ekki hér eitthvað spjall fyrir ótímabærar yfirlýsingar yfirlögregluþjóns. Þar á ofan er komnar efasemdir um að stjórnkerfið virki hjá okkur.

Málið er grafalvarlegt og tilefni til að votta þeim sem eiga hlut að máli samúða og hluttekningu.

Björgunarsveitarmenn leggja á sig í mikið erfiði og áhættu við björgunarstörf sem rugludallar hafa orsakað.


mbl.is Ólíklegt að fyrirtækið verði dregið til ábyrgðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég var hissa á orðum þessa lögreglumanns. Ég hef unnið við leiðsögn og það var ávallt regla að telja út úr bíl/rútu áður en farið var inn á svæði og aftur inn í bíl/rútu. Algjört lykilatriði. Mér sýnist á öllu að hjá þessu ferðaþjónustu fyrirtæki vanti mikið upp á fagmennsku.

Gunnar Magnússon (IP-tala skráð) 26.8.2024 kl. 23:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband