Leiðbeinandi varúðarlög

Á sínu tíma átti ég þess kost að vera í vinnu þar sem hægt var að sjá augljós mistök sveitarfélags á svokölluðu Vallarsvæði. Ég hugsaði mikið um þetta og velti því fyrir mér hvað sveitarstjórnarmenn í Hafnarfirð hafi verið að hugsa þegar íbúðarbyggð er skipulögð á svæði, nánast í hraunrennu eða nú farvegi hraungoss úr Bláfjöllum. Þessi renna er sjáanleg út i sjó hjá golvelli við ströndinni. Og öll stjórnvöld sem koma eiga að því reyna að gera rétt og líta til ýmiskonar hættu af völdum náttúruhamfara segja bara, ok þetta er allt í lagi við samþykkjum þetta bar, það er  ef till vill einhver hætta og þá verður henni bara mætt, er það ekkkí. Íslendingar hafa einu sinni  augjóslega sopið seyðið af slíkum mistökum og þar er hægt að nefna Kröfluvirkjun. Þar var varla búið að bora fullnægjandi rannsóknarborholur til þess að tryggja orku til fyrirtækisins og svo fór að gjósa og allt í pati. Þarna hefði nú verið sterkur leikur að fara sér hægar.

Deilan um Blönduvirkjun var átök um beitarhagsmun um beit sauðfjár, það blasti við að Blönduvirkjun var góður kostur til að tryggja orkukerfið á Norðurlandi eftir að Laxárvirkju var sleginn af og  Kröfluvirkjun misheppnaðist. Ég vil geta þess að það var fullkomlega ljóst að ekki var hægt að sökkva Laxárdal eins og ætlunin var og voru hvað á maður að segja, of mikil náttúruvermæti í spilinu sem ekki var réttlætanlegt að fórn.Því var Blönduvirkjun á þessum tíma augljósan rétt vegna þess að hún var ekki á svæði þar sem von væri á jarðskjálftum og gosi. Enda minnir mig að það hafi verið í málefnasamningi við myndun ríkistjórn Gunnars Thoroddsen ákvæði sem tók á þessu atriði.

Nú er farið að ræða að flytja Reykjavíkurflugvöll í Hvassahraun. Manninum á götunni leyst ekki á það enda var hann ekki spurður. En nú dimmir á þessu svæði og alla landnotkun þarf að gaumgæfa.

Grindvíkingar hafa verið studdir til hins ítraðst og er það vel. Atvinnurekstur þeirra byggir mikið á því að vinna út á sjó. Svo staðan er svolítið betri, en að vera með atvinnurekstur í Hvassahrauni, Hvassahraun er til sölu. Eigendur hugsanlega búnir að uppgötva þetta og vilja losna út úr hugsanlegum skaða sem gæti tafið og orkað tvímælis um landnotkun.

 Nafnið á færslunni er sérstakt og sennilega detti engum í hug svona arfa vitlaus lagasetning fyrirfram setning laga á óorðnum atburðum. Flest lög er stefnt gegn óorðnum atburðum. Hægt væri ef til vill að búa þessa hugsun í önnur klæði, það má vel vera. Bændur hafa nokkurt rými til að velta fyrir sér hættu sem eru ekki alltaf mjög sjáanlegar og ég tilheyri þeim hópi. Það eru þá kannske vorhretin sem vont er að átta sig.

Ég átti vinnufélaga sem hafði skoðanir á mörgu og var búinn að koma sér upp ritningu sem hann notði þegar honum fannst stefna í óefni við lausna mála:

Hann sagði: best, sem vitlausast. og hafði hana uppi skrifaða hjá sér.

 


mbl.is Hvassahraun komið í söluferli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Hver er summan af tíu og fjórtán?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband