Ég held að þetta sé hrekkjarbragð út af því að Núbó fékk ekki að kaupa Grímsstaði á Fjöllum.
Nú eru allir að leita eftir sínu nafni út og suður og í öngum sínum ef ekkert finnst á listanum.
Vafalaust er þetta hluti af nafnalista vegna netverslunar. Kínverjar eru að grínast og skemmta sér á því er engin vafi í mínum huga.
Þetta er Kínaat til að koma sér í sviðsljósið.
Auðvitað eiga þeir sem eru á listanum að mynda samtök og krefjast skýringa. Það eru það stórnöfn á listanum að það þarf að fá skýringar.
Kommavinir? Laumukommar?
Utanríkisráðherra getur ekki látið undir höfuð leggjast að krefjast skýringar.
Boða sendiherran út í Viðey, þá verða Kínverjarnir skíthræddir og vita ekki hvað stendur til.
411 Íslendingar á skrá | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | 1.10.2020 | 10:20 (breytt kl. 16:47) | Facebook
Myndaalbúm
Bloggvinir
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Bergljót Gunnarsdóttir
- Dagrún Steinunn Ólafsdóttir
- Grétar Mar Jónsson
- Gunnar Rögnvaldsson
- Hörður B Hjartarson
- Ingibjörg Friðriksdóttir
- Jón Páll Jakobsson
- Jón Ragnar Björnsson
- Kristján Hilmarsson
- Kristján P. Gudmundsson
- Lilja Skaftadóttir
- Sigríður B Svavarsdóttir
- Sigurbjörg Eiríksdóttir
- Sigurjón Þórðarson
- Sumarliði Einar Daðason
- Valdimar Samúelsson
- au
- cakedecoideas
- Björgvin Þangbrandur "Birkirmár" Gíslasson
- Guðjón E. Hreinberg
- Kristinn Ágúst Friðfinnsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.12.): 93
- Sl. sólarhring: 372
- Sl. viku: 2476
- Frá upphafi: 572188
Annað
- Innlit í dag: 90
- Innlit sl. viku: 2225
- Gestir í dag: 90
- IP-tölur í dag: 90
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
"Tilraunir kínverska fjárfestisins Huangs Nubos til þess að kaupa jörðina [Grímsstaði á Fjöllum] fóru út um þúfur um árið og hefur jörðin verið auglýst til sölu á Evrópska efnahagssvæðinu."
Enginn stjórnmálaflokkur sem á sæti á Alþingi vill segja upp aðild Íslands að Evrópska efnahagssvæðinu, ekki einu sinni Flokkur fólksins eða Miðflokkurinn.
Útlendingar geta eignast allar jarðir hér á Íslandi og helminginn af öllum aflakvóta íslenskra fiskiskipa strax í fyrramálið ef þeir nenna því.
Þorsteinn Briem, 1.10.2020 kl. 11:36
"Aðilar, sem njóta réttar hér á landi samkvæmt reglum samningsins um Evrópska efnahagssvæðið (EES) eða stofnsamnings Fríverslunarsamtaka Evrópu (EFTA) um frjálsa för fólks, staðfesturétt, þjónustustarfsemi eða fjármagnsflutninga, geta öðlast heimild yfir fasteign hér á landi án leyfis dómsmálaráðherra, enda þótt þeir uppfylli ekki skilyrði 1. mgr. 1. gr. laga um eignarrétt og afnotarétt fasteigna."
Reglugerð um rétt útlendinga, sem falla undir samninginn um Evrópska efnahagssvæðið eða stofnsamning Fríverslunarsamtaka Evrópu, til að öðlast eignarrétt eða afnotarétt yfir fasteignum, nr. 702/2002
Á Evrópska efnahagssvæðinu eru Evrópusambandsríkin, Ísland, Noregur og Liechtenstein og í EFTA eru Ísland, Noregur, Sviss og Liechtenstein.
"Fasteign merkir í lögum þessum afmarkaðan hluta lands ásamt lífrænum og ólífrænum hlutum þess, réttindum sem því fylgja og þeim mannvirkjum sem varanlega er við landið skeytt."
Jarðalög nr. 81/2004
Þorsteinn Briem, 1.10.2020 kl. 11:40
Útlendingar, til að mynda Kínverjar, geta nú þegar átt helminginn af öllum aflakvóta íslenskra fiskiskipa en útlendingar hafa mjög lítið fjárfest í íslenskum sjávarútvegsfyrirtækjum.
23.11.2010:
"Friðrik J. Arngrímsson, [nú fyrrverandi] framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að lögin hafi alltaf verið skýr varðandi erlent eignarhald í sjávarútvegi.
"Erlendir aðilar mega eiga allt að 49,99% óbeint, þó ekki ráðandi hlut, og svona hafa lögin verið lengi," segir Friðrik."
"Nefnd um erlenda fjárfestingu hefur að undanförnu fjallað um málefni sjávarútvegsfyrirtækisins Storms Seafood sem er að hluta til í eigu kínversks fyrirtækis, Nautilius Fisheries.
Eignarhlutur Kínverjanna er um 44%, beint og óbeint.
Og niðurstaða nefndarinnar er að það sé löglegt."
Þorsteinn Briem, 1.10.2020 kl. 11:43
15.12.2015:
"Eignarhaldsfélagið Langisjór hagnaðist um 624 milljónir króna á síðasta ári, samkvæmt nýbirtum ársreikningi.
Félagið á og rekur nokkur fyrirtæki í matvælavinnslu, þar á meðal kjúklingaframleiðandann Matfugl og Salathúsið, og var rekið með jákvæðri afkomu upp á 813 milljónir árið 2013."
Stærsti eigandi kjúklingaframleiðandans Matfugls er skráður á Möltu
Þorsteinn Briem, 1.10.2020 kl. 11:45
24.10.2018:
"Kanadíska orkufyrirtækið Innergex hefur ákveðið að bjóða til sölu tæplega 54% eignarhlut sinn í HS Orku.
Formlegt söluferli hófst um miðjan þennan mánuð, samkvæmt heimildum Markaðarins, en gróflega áætlað gæti virði hlutarins verið í kringum þrjátíu milljarðar króna.
Á meðal eigna fyrirtækisins er 30 prósenta hlutur í Bláa lóninu.
Innergex eignaðist hlutinn í HS Orku í byrjun þessa árs þegar það gekk frá kaupum á öllu hlutafé kanadíska orkufélagsins Alterra.
HS Orka er þriðji stærsti raforkuframleiðandi landsins og jafnframt eina orkufyrirtækið á Íslandi sem er í eigu einkafjárfesta."
Kanadíska orkufyrirtækið Innergex vill selja meirihluta sinn í HS Orku
Þorsteinn Briem, 1.10.2020 kl. 11:48
Þetta er ekkert á móti því sem seinna kemur frá Kínverjum sem nú hafa testað viðbrögð vesturlandabúa við sýklaárás. Þessi tókst vel hvað varðaði tímasetningu og viðbrögð Ítala sem fengu tugþúsunda Kínverja í löngu nýársfrýji til að dreifa veirunni rækilega um öll iðnaðarsvæðin á Ítalíu uppi í norðri, en þangað komu svo skíðagarpar frá allri Evrópu og sáu um eftir áframhaldandi dreifing. Þetta er það planið sem ég náði í og stend svona sæmilega við það, en það fóru fram póstsendingar um allan heim frá Kína sem ég get ekki sagt rétt frá þar sem sönnun vantar alveg, bara tal á milli manna.
50cal.
Eyjólfur Jónsson, 2.10.2020 kl. 19:48
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.