Ég var í sveitinni um daginn og menn voru bara glaðir yfir því að hafa eignast 2 Framsóknarflokka en máttu nú lítð vera að því að spjalla vegna anna við að breyta fjósum og undirbúa sig undir veturinn.
Í þéttbýli er svo sem engin sérstök kæti yfir 2 Framsóknarflokkum hingað til hefur einn stór Framsóknarflokkur dugað og oftast verið afsprengi misvægis atkvæða. Það er svo sem ekkert nýtt í pólutíkinni að menn hafi átt erfitt með að tala saman þegar komið er að því að setja saman ríkisstjórn. Þá kmur upp hver á að vera í forsæti. Svoleiðis aðstæður mynduðust árin 1950-53. Stirðleiki milli Ólafs Thors og Hermanns Jónassonar gerði þeim erfitt fyrir að sitja í ráðuneyti undir forsæti hvor annars. Þess vegna var Steingrímur Steinþórsson búnaðarmálastjóri kallaður til ofan úr Búnaðarfélagi Íslands og beðin um að verða forsætisráðherra af hálfu Framsóknarmanna í samsteypustjón Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks á árunum 1950-53. Svona er oft hægt að leysa málin.
Það er náttúrlega gott að bændur gleðjist en það yrðu nú erfitt fyrir þá að sitja landið ef þetta talsambandsleysi yrði að venju í sveitum lndsins. Þess vegna gefa þessir forustumenn ekki gott fordæmi öðrum smákóngum.
Þessi útkoma þeirra í kosningunum er undraverð satt að segja, Framsókn vinnur mjög góðan varnarsigur sem kemur vissulega á óvart.
Hitt var auðvelt að bjóða bara fólki hlut í banka og fá drjúgt fylgi út á það, en er það kannske betra en að láta ræna bankana.
Hrafnkell Freysgoði lenti í miklu málaskaki austur á landi (Hrafnklssaga Freysgoða ) og var háður svokallaður féránsdómur yfir honum eftir að hann drap smala sinn og missti hann allt sitt. Í þeirri sögu kemur berlega í ljós hversu framkvæmdavaldið var veikt, því dómhafar urðu að fá aðkomumenn til a fullnusta dóm yfir Hrafnkatli. En Hrafnkell gerði það sem á að gera þegar menn lenda í svona aðstæðum, lífsháska og deilum. Hann var glaður og brattur heilsaði öllum ætíð með handabandi og talaði við alla. Af því má ýmislegt læra.
Í þessum kosningum hafa ekki heyrst af því sögur að kosningasmalar hafi farist.
![]() |
Sögulegt símtal Sigmundar og Sigurðar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | 2.11.2017 | 11:34 (breytt kl. 11:53) | Facebook
Myndaalbúm
Mars 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | ||||||
2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 |
9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 |
16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 |
23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 |
30 | 31 |
Bloggvinir
-
Axel Jóhann Hallgrímsson
-
Bergljót Gunnarsdóttir
-
Dagrún Steinunn Ólafsdóttir
-
Grétar Mar Jónsson
-
Gunnar Rögnvaldsson
-
Hörður B Hjartarson
-
Ingibjörg Friðriksdóttir
-
Jón Páll Jakobsson
-
Jón Ragnar Björnsson
-
Kristján Hilmarsson
-
Kristján P. Gudmundsson
-
Lilja Skaftadóttir
-
Sigríður B Svavarsdóttir
-
Sigurbjörg Eiríksdóttir
-
Sigurjón Þórðarson
-
Sumarliði Einar Daðason
-
Valdimar Samúelsson
-
au
-
cakedecoideas
-
Björgvin Þangbrandur "Birkirmár" Gíslasson
-
Guðjón E. Hreinberg
-
Kristinn Ágúst Friðfinnsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (14.3.): 6
- Sl. sólarhring: 12
- Sl. viku: 62
- Frá upphafi: 578492
Annað
- Innlit í dag: 6
- Innlit sl. viku: 53
- Gestir í dag: 5
- IP-tölur í dag: 5
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.