Þetta verður magnað og örugglega góð skemmtun fyrir fjölskyldur og börn.
Heimild,tekið af mbl.is:
Þér er boðið í ferðalag um landslag tilfinninga. Þú verður leidd/ur um höfnina, báta, tjöld og fjöruna. Þú upplifir ógleymanlegt ferðalag í gegnum náttúruna, tilfinningar, minningar, gleði, hræðslu og drauma.
Þú færð úthlutaðan tíma til að mæta í Snarfarahöfn, þar sem upplifunin hefst. Þú finnur lyktina af reipi og bátum. Það brakar í dyrum sem opnast. Þú heyrir snark í arineldi. Gólfið er þakið þykku öskulagi. Þér er boðið að ganga inn.
Þú ert um það bil að leggja upp í tilfinningaríka ferð, blandaða af innsetningum, hljóðskúlptúrum, gagnvirkni og textum. Þú ert leidd/ur áfram af listamönnum og gps-stýrðu hljóðkerfi í heyrnartólum en þó er þetta þín persónulega reynsla. Þennan leiðangur, á kunnuglegar en um leið ókannaðar slóðir, upplifir þú með öllum skilningarvitum. Ilmurinn af trébátum, gleymdum draumum um vanillu og rykugum hornum barnæsku þinnar skuggi andlits sem minnir á þitt eigið.
Árið 2014 hlaut Phoenix-verkefnið, sem fyrst var sett upp í Árósum í Danmörku, verðlaun The Arts Foundation í Danmörku. Sýningin er sköpunarverk níu alþjóðlegra listamanna með fjölbreyttan bakgrunn í ólíkum listgreinum.
Snarfarahöfn, Elliðavogi
21. maí 05. júní kl 14:30 16:30
Alla daga nema mánudaga og þriðjudaga
Verð: 2.500 kr.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | 20.5.2016 | 08:12 | Facebook
Myndaalbúm
Bloggvinir
-
Axel Jóhann Hallgrímsson
-
Bergljót Gunnarsdóttir
-
Dagrún Steinunn Ólafsdóttir
-
Grétar Mar Jónsson
-
Gunnar Rögnvaldsson
-
Hörður B Hjartarson
-
Ingibjörg Friðriksdóttir
-
Jón Páll Jakobsson
-
Jón Ragnar Björnsson
-
Kristján Hilmarsson
-
Kristján P. Gudmundsson
-
Lilja Skaftadóttir
-
Sigríður B Svavarsdóttir
-
Sigurbjörg Eiríksdóttir
-
Sigurjón Þórðarson
-
Sumarliði Einar Daðason
-
Valdimar Samúelsson
-
au
-
cakedecoideas
-
Björgvin Þangbrandur "Birkirmár" Gíslasson
-
Guðjón E. Hreinberg
-
Kristinn Ágúst Friðfinnsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.6.): 8
- Sl. sólarhring: 840
- Sl. viku: 2795
- Frá upphafi: 587663
Annað
- Innlit í dag: 8
- Innlit sl. viku: 2404
- Gestir í dag: 8
- IP-tölur í dag: 8
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.