Sólarkaffi Ísfirðingafélagsins árið 2016 verður haldið föstudaginn 29. janúar í hinum glæsilega veislusal Gullteig á Grand Hótel Reykjavík. Húsið opnað kl. 19:30, borðhaldið hefst kl. 20:00, ballið hefst kl. 23:00. Veislustjóri: Rúnar Rafnsson, sölumaður og diskótekari (sonur Sigrúnar og Bjössa Charles).
Hljómsveitin Húsið á sléttunni, með Halldór Smárason og þá Olgeirs bræður úr Bolungarvík í framlínunni leikur fyrir dansi. Þeir félagar eru margrómaðir fyrir skemmtilega og hæfileikaríka spilamennsku. Ræðumaður kvöldsins verður Margrét Geirsdóttir, sviðsstjóri fjölskyldusviðs Ísafjarðarbæjar, kórstjóri og söngkona með meiru.Forsala á aðgöngumiðum verður á Grand Hótel Reykjavík laugardaginn 16. janúar kl. 14:00 15:00.
Grand Hótel Reykjavík verður með tilboð á gistingu og Flugfélag Íslands verður með tilboð á flugi í tilefni af Sólarkaffinu. Þeir sem ætla að nýta sér þessi tilboðið, vinsamlegast tilkynni við bókun tengingu við Sólarkaffi Ísfirðingafélagsins. Nú gleðjumst við saman í góðra vina hópi.
Munið að taka kvöldið frá, skemmtum okkur saman.
Stjórn Ísfirðingafélagsins
Heimild: Tekið af vef Ísfirðingafélagsins
Amma mín Karítas Skarphéðinsdóttir frá Viðey og og afi minn Magnús Guðmundsson, ,,Mangi fori" eiga sér snotra sögu á Ísafirði svo það má segja að ég eigi ættir að rekja þangað og er ég töluvert drjúgur yfir því.
Þá var ég háseti á Ísborginni ÍS 250 frá Ísafirði en hún var síðutogari sem breytt var í fraktskip og silgdi víða um heimsin höf. Endlok Ísborgarinnar voru þau að hún var seld til Miðjararhafs og notuð þar í smyglflutningum. Það komst upp þegar settur var fantaflottur radar á skipið og þótti strandgæslunni það grunsamlegt og vildi stöðva skipið og fá að skoða það. Því var ekki hlýtt og hóf þá gæslan skothríð á brúna og við það var skipið stöðvað og fært til hafnar.
Í mínum huga hefur alltaf verið mikill sjarmi yfir Sólarkaffinu og það fólk sem þangað sækir ansi maskaralegt og flott.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | 29.1.2016 | 10:45 (breytt kl. 11:02) | Facebook
Myndaalbúm
Júní 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 |
Bloggvinir
-
Axel Jóhann Hallgrímsson
-
Bergljót Gunnarsdóttir
-
Dagrún Steinunn Ólafsdóttir
-
Grétar Mar Jónsson
-
Gunnar Rögnvaldsson
-
Hörður B Hjartarson
-
Ingibjörg Friðriksdóttir
-
Jón Páll Jakobsson
-
Jón Ragnar Björnsson
-
Kristján Hilmarsson
-
Kristján P. Gudmundsson
-
Lilja Skaftadóttir
-
Sigríður B Svavarsdóttir
-
Sigurbjörg Eiríksdóttir
-
Sigurjón Þórðarson
-
Sumarliði Einar Daðason
-
Valdimar Samúelsson
-
au
-
cakedecoideas
-
Björgvin Þangbrandur "Birkirmár" Gíslasson
-
Guðjón E. Hreinberg
-
Kristinn Ágúst Friðfinnsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.6.): 2
- Sl. sólarhring: 7
- Sl. viku: 322
- Frá upphafi: 584221
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 273
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.