Mánudaginn 20. júní 2011 kl:13.05 var ég undirritaður Þorsteinn H. Gunnarsson þáverandi starsmaður Strætó b.s við vinnu mína við að mála biðskýli í Langarima gegnt Klukkurima ásamt samstarfsmanni mínum.
Kom þá Rottvaler hundur yfir hljóðmönina úr garði á bláu húsi við Klukkurima og hljóp að okkur urrandi og geltandi. Þar sem ég er f.v. bóndi er ég yfir leitt ekki hræddur við hunda en eftir að hundurinn sýndi ítrekað árásartilburði urrandi og slefandi ákvað ég að við skyldum hörfa að bílnum og höfðum orð á að best væri að fara inn í bílinn.
Kom þá kona, ljóshærð ungleg, yfir hljóðmönina og reyndi að kalla hundinn, en hann hlýddi henni ekki vel. Náði hún hundinum þó til sín. Urðu orðaskipti milli okkar. Rann þá hundurinn aftur að okkur niður hálfa hljóðmönina. Ég sagði konunni að það mætti ekki hafa hunda lausa, hér væri biðskýli og farþegar á ferð.
Þá sagði hún; ,,Far þú frá þarna gamli karl. Ég sagði að ef hundurinn væri ekki bundinn mundi ég kæra lausagöngu hundsins fyrir lögreglunni. Þá sagði hún ,, Ef ú kærir þá læt ég hundin borða þig.
Lauk þar viðskiptum okkar og samtali. Hringdi ég á lögregluna eftir að hafa ráðfært mig við yfirmann minn, sem taldi eðlilegt að málið væri kært.
Kom lögreglubíll stuttu seinna með tveim lögreglumönnum og skrifuðu niður nafn mitt og samstarfsmans míns og tímasetningu atburðarins og sagði að þetta mál mundi svo fara sína leið.
Bókað í dagbók mína í Reykjavík 27. Júlí 2011
Ég hef ekkert frétt af þessu máli og hvernig því lyktaði og enn hef ég ekki lent í hundskjafti, en það er hundur í mér að fá ekki að vita hver niðurstaðan hefur orðið. Ef til vill er hundurinn dauður, en ég er alla vega lifandi og sprækur.
Aflífa þurfti sex hunda árið 2014 | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | 25.4.2015 | 10:19 | Facebook
Myndaalbúm
Nóv. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Bloggvinir
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Bergljót Gunnarsdóttir
- Dagrún Steinunn Ólafsdóttir
- Grétar Mar Jónsson
- Gunnar Rögnvaldsson
- Hörður B Hjartarson
- Ingibjörg Friðriksdóttir
- Jón Páll Jakobsson
- Jón Ragnar Björnsson
- Kristján Hilmarsson
- Kristján P. Gudmundsson
- Lilja Skaftadóttir
- Sigríður B Svavarsdóttir
- Sigurbjörg Eiríksdóttir
- Sigurjón Þórðarson
- Sumarliði Einar Daðason
- Valdimar Samúelsson
- au
- cakedecoideas
- Björgvin Þangbrandur "Birkirmár" Gíslasson
- Guðjón E. Hreinberg
- Kristinn Ágúst Friðfinnsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 5
- Sl. sólarhring: 12
- Sl. viku: 79
- Frá upphafi: 566943
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 61
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hundategundin heitir reyndar Rottweiler.
Snati (IP-tala skráð) 26.4.2015 kl. 07:55
Sati minn takk fyrir að leiðrétta mig.
Þorsteinn H. Gunnarsson, 26.4.2015 kl. 09:45
Unga ljóshærða konan reyndi að nota hundalógík á þig Þorsteinn, en varð ekki kápan úr því klæðinu.
Heimir Lárusson Fjeldsted, 26.4.2015 kl. 10:10
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.