Hugleiðing um jólin, leiðréttinguna og lögmál Ivan Pavlovs

Margir sem fást við kennslu og lært eitthvað í sálfræði kannast við lögmál Pavlovs um endurtekningu, sem hann útskýrði með tilraunum, samanber eftirfarandi sem er tekið af Wikipedía:

,,Frægasta dæmið um þetta eru án efa hundar Pavlovs. Ef kjötduft er sett á tungu hunda mun munnvatnsframleiðsla þeirra aukast ósjálfrátt. Kjötduftið er því í þessu tilfelli óskilyrt áreiti og munnvatnsframleiðslan óskilyrt svar. Ef ljós er kveikt eða bjöllu er hringt (hlutlaust áreiti) áður en kjötduftið er gefið parast ljósið eða bjölluhljómurinn við kjötduftið og verður að skilyrtu áreiti. Þegar kveikt er á ljósinu eða bjallan látin óma vekur það skilyrt svar, það er: munnvatnsframleiðsla hundanna eykst, og það án þess að þeim sé gefið kjötduftið.

Ef hljómun bjöllunnar eða kviknun ljóssins er endurtekið oft án kjötduftsins verður svokölluð slokknun, það er skilyrt svar hundanna, munnvatnsframleiðslan, verður smám saman minni. Þetta þýðir þó ekki að hundarnir hafi gleymt að bjölluhljómur eða ljós paraðist við mat. Það nægir að gefa þeim kjötduft einstaka sinnum til þess að þeir byrji aftur að seyta munnvatni við það að bjallan glymji."

 Eru jólin orðin smákökur malt og appelsín, auglýsingar í blöðum og cokelestin í hinum vestræna heimi? Eða eru þau bara lögmál Pavlovs. Það eru engin jól nema það sé hangiket eða prjónaðir vettlingar í jólagjöf, eins og í fyrra og svo öld eftir öld.

En nú er að koma nýr faktor inn í þessa jólajöfnu og það er leiðréttingin. Fáðu þér ný rafræn skilríki og þetta ert þú er auglýst í úvarpi og blöðum. Efirleiðis verða engin jól nema almenningur fái leiðréttingu. Hann mun kalla eftir því

Þeir sem fá sér ekki rafræn skilríki fara í jólaköttinn, gæti ríkistjórnin sagt. En eftirleiðis kallar fólk eftir leiðréttingu fyrir hver jól eins og menn kölluðu eftir hangiketi fyrr á öldum.

Ég tók þátt í prófinu og þetta kom út úr því: ,,Í augum Flórsleikis er Leiðréttingin mesta réttlætismál Íslandssögunnar. Hann veit fátt betra en íslenskan mat, sem hann skolar niður með ísköldu alíslensku Mountain Dew. Flórsleikir á allar seríurnar af Landanum og Stiklum á VHS." Ég var búin að skrifa færsluna áður enn ég tók prófið. Ætli ég sé laumu Framsóknarmaður það gæti litið þannig út?


mbl.is Hvaða jólasveinn ert þú?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband