Það er gott að þurfa ekki að hafa mannvirki á jörðinn Reykjum við Reykjabraut í gjörgæslu í svona veðri en þar bjó ég snotru búi 1986-1999. Einu sinni í ofsaveðri var ég nærri búin að missa þakið af fjárhúsunum. Stafnglugginn var fokinn inn og mölvaður og þakið dinglaði upp og niður þar sem handvömm við byggingu hafði átt sér stað. Dregari sem sperrurnar hvíldu á var ekki nægilega vel festur. Það sem bjargaði var að ég er stundum fljótur að hugsa. Tók ég tré mikið sem ég átti 2x6 og nelgdi það upp í dregarann og niður í gólfbita og þetta bjargaðist. Svo komu kennarar frá Húnavöllum og hjálpuðu mér. Í hnútunum sem skullu á íbúðarhúsið ofan af Nibbunni var eins og tröll berðu húsið að utan og maður var hræddur um að húsið springi. Í þessu veðri fauk fjárflutningavagn sem ég átti, tókst á loft á jafnsléttu og fauk 250-300m og lenti á hvolfi mikið skemmdur. ,,Þeir missa sem eiga" segir gamalt máltæki.
Granni minn Sigurjón á Orrastöðum missti þakið á sínum fjárhúsum. Hann var leigulið eins og ég.Hann hringdi eftir hjálp og var ég fyrstur á vettvang. Fór á þungri dráttarvél sem stóðst veðrið. Áleiðinni sá ég að hjólhýsi landsdrottins Sigurjóns, hafði fokið yfir veginn og splundraðst þar. Þegar ég kem að Orrastöðum stendur Sigurjón æðrulaus í garðanum og er að hára sínu fé og tekur mikið í nefið og segir með æðruleysi;,, Ég vorkenni Þormóði ( hann var landsdrottin Sigurjóns)að missa hjólhýsið", en hann virtist ekkert hafa áhyggjur af eigin stöðu. Þetta fannst mér fallega sagt miðað við aðstæður. Þá var oddvit sveitarinnar Erlendur mættur með mannskap og eitthvað var reynt að refta yfir fjárhúsin enda stóðu Torflækingar saman þegar á reyndi.
Nauðsynlegt er að yfirfara burðarvirki og neglingar reglulega á mannvirkjum til að minnka líkur á sköðum í hamfaraveðrum og lámarka tjón sem af þeim hlýst.
Flugi aflýst og veðrið að skella á | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | 30.11.2014 | 13:35 | Facebook
Myndaalbúm
Nóv. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Bloggvinir
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Bergljót Gunnarsdóttir
- Dagrún Steinunn Ólafsdóttir
- Grétar Mar Jónsson
- Gunnar Rögnvaldsson
- Hörður B Hjartarson
- Ingibjörg Friðriksdóttir
- Jón Páll Jakobsson
- Jón Ragnar Björnsson
- Kristján Hilmarsson
- Kristján P. Gudmundsson
- Lilja Skaftadóttir
- Sigríður B Svavarsdóttir
- Sigurbjörg Eiríksdóttir
- Sigurjón Þórðarson
- Sumarliði Einar Daðason
- Valdimar Samúelsson
- au
- cakedecoideas
- Björgvin Þangbrandur "Birkirmár" Gíslasson
- Guðjón E. Hreinberg
- Kristinn Ágúst Friðfinnsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.11.): 0
- Sl. sólarhring: 8
- Sl. viku: 41
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 31
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ég hélt það héti Reykir á Reykjabraut.
Björn S. Stefánsson
Björn S. Stefánsson (IP-tala skráð) 30.11.2014 kl. 16:46
Já þetta er góð spurning.Fyrir mér er þetta svona. Reykir standa við Reykjabraut og konans segir að það sé málvenjan. En hugsanlega er hægt að hafa þetta á fleiri vegu, og er frjálst af minni hálfu.
Þorsteinn H. Gunnarsson, 30.11.2014 kl. 18:22
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.