Í ævisögu Ólafs Ragnars Grímssonar sem ber nafnið Saga af forseta eftir Guðjón Friðriksson sem kom út hjá Máli og menningu 2008 segir svo á blaðsíðu 463:
,, Í grein í breska blaðinu Observer í nóvember 2005 sagði um forseta Íslands að hann væri,, í forsvari fyrir eina kraftmestu fjárfestingarvél heims".112 Þar var átt við svokallaða útrás Íslendinga en Ólafur hefur frá því að hún hófst fyrir alvöru árið 1998 unnið náið með langflestum af helstu frumkvöðlum hennar og liðkað fyrir ýmsum meiriháttar fjárfestingum erlendis með alþjóðlegum tengingum, samböndum sínum og nærveru sem þjóðhöfðingi. Í leiðara Blaðsins 15. mars 2006 var Ólafur kallaður ,, andlegur leiðtogi íslensku útrásarinnar". 113"
Svo mörg voru þau orð.,, Já miklir menn erum við Hrólfur minn"
Því má svo bæta hér við að Ólafur er höfundur Útflutningsleiðarinnar eða Grænu bókarinnar sem er nokkurskonar leiðarvísir hvernig útrásin á að ganga fyrir sig og hefur hann vafalaust notað hana sem forskrift við störf sín sem forseti Íslands.
Útflutningsleiðarinnar er getið í framangreindri bók á bls. 61 og naut Ólafur aðstoðar Más Guðmundsson hagfræðings, núverandi seðlabankastjóra.
Það er gömul saga og ný að þegar forustumenn þjóða eru komnir með allt niðrum sig heima fyrir og margt þar í hönk að þá er gjarnan notuð sú aðferð að ráðast á einhvern utan landsteinana til að draga athyglina fár eigin verkum.
Forsetinn ræðst að Gordon Brown | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | 23.1.2013 | 20:22 (breytt kl. 20:32) | Facebook
Myndaalbúm
Bloggvinir
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Bergljót Gunnarsdóttir
- Dagrún Steinunn Ólafsdóttir
- Grétar Mar Jónsson
- Gunnar Rögnvaldsson
- Hörður B Hjartarson
- Ingibjörg Friðriksdóttir
- Jón Páll Jakobsson
- Jón Ragnar Björnsson
- Kristján Hilmarsson
- Kristján P. Gudmundsson
- Lilja Skaftadóttir
- Sigríður B Svavarsdóttir
- Sigurbjörg Eiríksdóttir
- Sigurjón Þórðarson
- Sumarliði Einar Daðason
- Valdimar Samúelsson
- au
- cakedecoideas
- Björgvin Þangbrandur "Birkirmár" Gíslasson
- Guðjón E. Hreinberg
- Kristinn Ágúst Friðfinnsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.12.): 16
- Sl. sólarhring: 390
- Sl. viku: 817
- Frá upphafi: 570114
Annað
- Innlit í dag: 13
- Innlit sl. viku: 727
- Gestir í dag: 13
- IP-tölur í dag: 13
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Amen, í friðarins nafni.
M.b.kv.
Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 24.1.2013 kl. 00:35
Er vík milli vina Þorsteinn? ;)
Heimir Lárusson Fjeldsted, 24.1.2013 kl. 11:13
Góð ámynning!
Jón Páll Haraldsson, 24.1.2013 kl. 15:29
Heimir, ég er bara sögumaður og segi frá hvað stendur í bókinni.
Á bls. 97 segir Ólafur að hann hafi skorið á öll tengsl við samherja sína í pólitíkinni eða eins og hann segir frá sjálfur,, Ég vildi ekki vera undir gagnrýnina seldur því ég vissi að ég væri grunaður um að vera áfram með puttana í stjórnmálum".
Ég er sem sagt bara að halda sögunni til haga.
Þorsteinn H. Gunnarsson, 24.1.2013 kl. 16:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.