ÉG VIL STILLA MÍNA STRENGI
Ég vil stilla mína strengi, ég vil syngja lítið ljóð
um þann ljúfa draum sem út í bláinn fló.
Ég vil syngja mína söngva um hið fagra, unga fljóð
sem að forðum ég unni meir en nóg.
Ó, þú kærastan mín kær,
litla, káta Víkurmær,
þinna kossa ég minnist enn í dag.
Þér til dýrðar vil ég stilla mína strengi þetta kvöld.
Þú ert stúlkan sem átt mitt kvæðalag.
Ó, ég man þá dýrðardaga og þau dásamlegu kvöld
og þær draumanætur við þinn heita barm.
Og ég man þá björtu fegurð þegar vorið hafði völd
og þú vafðir mig hvítum, mjúkum arm.
Hún er engu öðru lík þessi æskurómantík,
þegar unga hjartað slær svo villt og fljótt.
Þá er guðdómlegt að vaka tvö og vera saman ein
úti' í vorljósri, heitri júnínótt.
Hverju vori fylgir sumar, hverju sumri fylgir haust
og hið sama lögmál réði þinni ást.
Það var naumast hægt að segja að hún entist endalaust,
nú er of seint um slíkan hlut að fást.
Því að kærastan mín kær, þessi káta Víkurmær,
er nú konuefni stórútgerðarmanns.
Ég er ráðinn fyrir skolli drjúgan skilding annað kvöld
til að skemmta í brúðkaupinu hans.
Texti: Jón frá Ljárskógum

Nýtt stjórnmálaafl kynnt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | 8.12.2011 | 19:23 | Facebook
Myndaalbúm
Nóv. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Bloggvinir
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Bergljót Gunnarsdóttir
- Dagrún Steinunn Ólafsdóttir
- Grétar Mar Jónsson
- Gunnar Rögnvaldsson
- Hörður B Hjartarson
- Ingibjörg Friðriksdóttir
- Jón Páll Jakobsson
- Jón Ragnar Björnsson
- Kristján Hilmarsson
- Kristján P. Gudmundsson
- Lilja Skaftadóttir
- Sigríður B Svavarsdóttir
- Sigurbjörg Eiríksdóttir
- Sigurjón Þórðarson
- Sumarliði Einar Daðason
- Valdimar Samúelsson
- au
- cakedecoideas
- Björgvin Þangbrandur "Birkirmár" Gíslasson
- Guðjón E. Hreinberg
- Kristinn Ágúst Friðfinnsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.11.): 2
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 43
- Frá upphafi: 566866
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 33
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ójá ætli tíminn verði ekki að leiða í ljós hversu rugluð og ráðvillt íslenska þjóðin er orðin? Vonandi er hún reynslunni ríkari af svona allskonar gríni.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 10.12.2011 kl. 10:55
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.