Þessi frétt kemur á óvart.
Ég stóð í þeirri meiningu að Íslandshreyfingin hafi gengið inn í Samfylkinguna á sínum tíma án nokkurra skilyrða. Ekki einu sinni eitt stykki þingmaður þó kjörfylgi Íslandshreyfingarinnar hafi gefið það til kynna.
,,Íslandshreyfingin lifandi land var íslenskur stjórnmálaflokkur, stofnaður vorið 2007, sem lagði höfuðáherslu á umhverfisvernd en kenndi sig einnig við frjálslyndisstefnu. Formaður (til bráðabirgða) var Ómar Ragnarsson og varaformaður Margrét Sverrisdóttir. Að flokknum kom einnig Jakob Frímann Magnússon og Ósk Vilhjálmsdóttir. Flokkurinn fékk 5.953 atkvæði, 3,3% fylgi, í Alþingiskosningum 2007 og engan mann kjörinn. Flokkurinn var á fyrri hluta árs 2009 sameinaður Samfylkingunni þar sem flokkurinn taldi að erfitt yrði að ná yfir 5% múrinn sem flokkar verða að ná í kosningum til að fá jöfnunarmann. Íslandshreyfingin gekk inn í Samfylkinguna í mars 2009, nokkrum dögum eftir að tilkynnt hafði verið um framboð hreyfingarinnar í öllum kjördæmum. Íslandshreyfingin varð þar með fimmti flokkurinn sem hefur gengið í Samfylkinguna. [1][2][3][4][5][6][7]
Heimild:Vikipedia
Nú virðist koma í ljós að Íslandshreyfingi er sprelllifandi með stjórn og alles.
Þá er spurningin þessi; Er Íslandshreyfingin deild í Samfylkingunni með svona smá rennihurð fyrir prívat fólk þegar á þarf að halda, eða er hún almannahreyfing með formföstu skipulagi þ.a.e.s. aðalfundum og sérstöku félagslögum og lifandi starfi, félagsvistum og þorrablótum?
Má búast við að þeir flokkar sem mynduðu Samfylkinguna á sínum tíma rísi upp frá dauðum á næstunni?
Mótmælir rannsóknarleyfi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | 11.1.2011 | 18:05 | Facebook
Myndaalbúm
Nóv. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Bloggvinir
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Bergljót Gunnarsdóttir
- Dagrún Steinunn Ólafsdóttir
- Grétar Mar Jónsson
- Gunnar Rögnvaldsson
- Hörður B Hjartarson
- Ingibjörg Friðriksdóttir
- Jón Páll Jakobsson
- Jón Ragnar Björnsson
- Kristján Hilmarsson
- Kristján P. Gudmundsson
- Lilja Skaftadóttir
- Sigríður B Svavarsdóttir
- Sigurbjörg Eiríksdóttir
- Sigurjón Þórðarson
- Sumarliði Einar Daðason
- Valdimar Samúelsson
- au
- cakedecoideas
- Björgvin Þangbrandur "Birkirmár" Gíslasson
- Guðjón E. Hreinberg
- Kristinn Ágúst Friðfinnsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 16
- Sl. sólarhring: 17
- Sl. viku: 81
- Frá upphafi: 566937
Annað
- Innlit í dag: 13
- Innlit sl. viku: 63
- Gestir í dag: 12
- IP-tölur í dag: 9
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Það er von að fólk spyrji, ég vildi gjarnan fá svör líka.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 11.1.2011 kl. 23:34
Það er hugsanlegt að samið hafi verið um það að vera aðildarfélag og fengju að halda háttum sínum siðum og venjum, hefðum og sérkennum.
En þá verður það að koma í ljós hvort Íslandshreyfingin sé sér kjördæmafélag með sér framboðsrétt til Alþingis.
Þetta þarf að gera uppskátt ef einhver vildi ganga í Íslandshreyfinguna og komast þar til áhrifa. Annars verður að líta svo á að þetta sé lokaður klúbbur.
Þetta virðist stórmerkilegt félagsform.
Þorsteinn H. Gunnarsson, 12.1.2011 kl. 07:02
þá væri þetta eins og með Besta Flokkinn, deild í SF.
Gunnar Waage, 12.1.2011 kl. 11:55
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.