Barn fætt í Hvalfjarðargöngum.

Flestur Íslendingar hafa sennilega fæðst heima hjá sér frá landnámi. En þessi fæðing hefur verið mögnuð. Ég er fæddur í stiga. Svoleiðis var að sjúkraflutningsmennirnir voru komnir upp á efri hæðina í húsinu og voru farnir að halla börunum niður á við, það sást á kollinn á mér og svo skaust ég út með glans. Losnaði algjörleg  við að vera uppnefndur stigamaður. Það hefði verið plága. Systur mínar segja að ég hafi komið undir á friðardaginn þegar seinni heimsstyrjöldinni lauk, það var svo mikið fjör þá eins og er núna um verslunarmannahelgina.

 Ég er friðarsinni og friður eru mestu lífgæði sem til eru og því illskijanleg allar þessar styrjaldir  ófriður vítt og breytt um hnöttinn.

Ég bið barninu blessunar og móðurinni og vona að ekki verði farið að uppnefna það gangamaður, þá væri það komið upp á Arnarvatnshæðir um fermingu, með tvo til reiðar.

Sögur herma að þegar kona þurfti að fæða í minni heimasveit og ófært var á sjúkrahúsi þá var bílinn fylltur af mokstursmönnum til  að moka skaflana Þá voru vegir sjaldan mokaðir. Svona þurftu nú landsmenn að bjarga sér og sínum.


mbl.is Fæddi barn á ferð í miðjum Hvalfjarðargöngum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gamla fólki reysir upp baráttu við óleyfisframkvæmdum og átroðningi

Ekki er ég hiss á að gamla fólk fara að láta skína í óánægju, vegna þessa máls Reykjavíkurborgar.

Stöndum með gamla fólkinu. 

Það eru enda laust klúður vegna skipulags óreiðu og mistaka og ókunnugleik. 

Tökum græna gímaldið t.d. Alger hryllingur, sett fyrir framan glugga hjá  íbúunum? 

Hér er um hámark dónskapar og óssvífni að ræða. Til hvers eru gluggar? Bara fyrir gardínur eða hvað? 

 


mbl.is Íbúarnir vilja svör og upplýsingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 1. ágúst 2025

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband