Umræður á Alþingi voru mjög sterkar og heillegar, enda þarna mikið af atgervisfólki í öllum flokkum. Þarna var mikið af frambærilegum kandídötum sem voru leiknir í ræðumennsku og að stilla sinni ræðu vel upp. Skemmtileg þótti mér matador umræða Höllu Hrundar, svo lítið nálægt sannleikanum. Gott innlegg hjá Sigurjóni Þórðarsyni um 50-kallinn og 500-kallinn.
Flokkarnir komu vel út með að stilla umræður sínar heillega upp, vantaði ef til vill sumstaðar framherja til að taka á móti andstæðingnum. Sumir voru jú með þetta, en þetta var helsta atriðið sem var veikast.
Það var ekki tekist á um stóra málið, sjávarútveginn, sem er búið að afvegaleiða umræðu á margan hátt. Eins og til dæmis með hrópum um landsbyggðarskatt, sem er ekki, því allir geta veitt sinn kvóta miðað við ráðgjöf Hafró. Sjómennirnir fá sinn aflahlut, sveitarfélögin geta skattlagt þennan hóp eins og verið hefur.
Um daginn hlustaði ég á útgerðarmann ræða þessi mál. Hann horfði á sitt skip og sagði að það væri gamalt og þarfnaðist bráðlega endurnýjunar og hvað þá? Það var eins og það yrði heimsendir. Kom þannig orði að því máli að með því að setja þessi lög væri allt búið. Heimsendir? Þetta er náttúrulega kostulegt sjónarhorn. Hvað með afskriftirnar? Spurning hvort þetta sé rassvasa bókhald, eða alvöru bókhald.
Þegar búið er að færa bókhaldið, allar tekjur komnar inn og búið að draga útgerðarvörur frá, s.s. veiðafæri, olíu og laun. Þá stendur eftir annað hvort hagnaður eða tap.
Varla að menn séu svo klárir að standa á núlli með þetta.
Afskriftir eru útborgaðar til eigenda beint og hann búinn að koma þeim í skjól í banka eða undir koddann eða í peningaskáp heima í stofu. Ef um er að ræða endanlegan hagnað þá ætti hann að vera notaður til að borga veiðileyfisgjöld og arð til eigenda (hluthafa) til að fá arð af eigin féi sem hann hefur lagt til útgerðarinnar. Einhverjar sporslur væru í lagi að greiða góðri áhöfn umfram hlut. Svo væri hægt að fara í árshátíðarferð með konu og áhöfn og hafa það gott í smátíma. Auka sporsla fyrir dugnað og útsjónarsemi til eigenda og framkvæmdastjóra.
Hugsanlega ætti að athuga hvort betra sé að setja afskriftirnar inn á reikning hjá Seðlabanka Íslands á nafni og kennitölu útgerðarfélags og ekki afhent nema verið væri að borga nýtt skip, basta. En þá þyrfti að fjármagna mismuninn með lántöku. Það sem eftir stendur af hagnaði eru veiðigjöld, allt eftir skipulagi og áherslum framkvæmdavaldsins, tekinn af ríkjandi meirihluta á Alþingi. Þá væri hægt að fara að skipta gróðanum á milli eigenda hlutabréfa í útgerðinni. Ef útgerð væri rekin á kennitölu útgerðarmanns þá kæmi hagnaðurinn allur til hans og mætti skilgreina það sem fjármagnsskatt sem eigandi hafi lagt til útgerðarinnar af eigin fé í upphafi. Enginn skattur á sveitarfélög.
Þau sjá um hafnir og bryggjur og hafa það í félagi og sumstaðar byggðarsamlög og rukka hafnargjöld af skipakomum. Þannig liggja málin nokkurn veginn.
Það er enginn að berja neinn eða hata eða vera í hefndarhug, bara dýrin í skóginum og strandveiðiþorpin vítt og breitt um landið, vinir, sem í mörgum tillfellum hafa afhent kvóta öðrum af gáleysi og hafa ekki áttað sig á hvernig þetta allt virkaði, en standa svo slipp og snauð, vegna eigin gerða. Þetta er kapítalskt kerfi sem farið er að aukast ásmegin. Menn geta alveg verið duglegir ef þeir eru samvinnumenn.
Hingað og ekki lengra sagði kerlingin. Nú þarf fólk að vera eins og snjótittlingurinn að þola allar hríðar og stórviðri og láta á reyna hvaða rétt þjóðin á í þessum efnum.
![]() |
Ekki tími fyrir tafaleiki stjórnarandstöðunnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 12.6.2025 | 16:32 (breytt kl. 16:32) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 12. júní 2025
Myndaalbúm
Bloggvinir
-
Axel Jóhann Hallgrímsson
-
Bergljót Gunnarsdóttir
-
Dagrún Steinunn Ólafsdóttir
-
Grétar Mar Jónsson
-
Gunnar Rögnvaldsson
-
Hörður B Hjartarson
-
Ingibjörg Friðriksdóttir
-
Jón Páll Jakobsson
-
Jón Ragnar Björnsson
-
Kristján Hilmarsson
-
Kristján P. Gudmundsson
-
Lilja Skaftadóttir
-
Sigríður B Svavarsdóttir
-
Sigurbjörg Eiríksdóttir
-
Sigurjón Þórðarson
-
Sumarliði Einar Daðason
-
Valdimar Samúelsson
-
au
-
cakedecoideas
-
Björgvin Þangbrandur "Birkirmár" Gíslasson
-
Guðjón E. Hreinberg
-
Kristinn Ágúst Friðfinnsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (13.6.): 135
- Sl. sólarhring: 222
- Sl. viku: 334
- Frá upphafi: 584540
Annað
- Innlit í dag: 131
- Innlit sl. viku: 275
- Gestir í dag: 129
- IP-tölur í dag: 129
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar