Bessastaðir og nýi forsetinn og Hin Íslensku bókmenntaverðlaun

Mikið var þetta fallegur atburður á Bessastöðum og forsetinn glansaði með sjálfan sig og athöfnina og  athyglisverð ávörpin og muna eftir því sem er að gerast í stríðinu fyrir botni Miðjarðarhafs, börn drepin og limlest. Forseti stórveldis ætlar að ryðja land Palestínumanna og flytja þá til Egyptalands og Jórdaníu, varla búin að ræða við þá sem þar ráða löndum og engin alþjóðleg ákvörðun. Ég er nú bara hættur að skilja þetta ástand. Þá er nú gott að vera Íslendingur og horfa á þessa uppskeruhátíð rithöfunda og þeirra sem búa til bækur og koma þeim í bókaverslanir.

Við erum nú stolt að geta kallað okkur bókaþjóð og eiga svona gamla menningu sem felast í bókum, sem segja margskonar sögur. Og meira segja afabörnin eru farin að þykja vænt um Njálu. En í þessari gleði er hægt að segja frá Íslendingum sem hafa skapað eftirminnilegar sögu erlendis í mannlífun þar.

Það eru margir hrifnir af Kára Sölmundssyni sem slapp úr brennuni, þegar Skarphéðinn var að kafna í Njálsbrennu. En Kári fylgdi reyknum og faldi sig í honum og komst á braut. Sögur segja að hann hafi farið til Kænugarðs sem er höfuðborg Kíev í Úkrainu og gengið þar frá nokkrum brennumönnum.

Annar þekktur stríðsmaður Sturla Sighvatsson, sem var búin að syndga svo mikð að það var komið óþol í hann að komast til páfans í Vatikanið í Róm til að fá syndaaflausn. Þar sagði Ástþór Magnússon friðarsinnis maður að í garði páfa væri mörg þúsund herbergi í hýbýlum páfa, í bókinni um Bessastaði, sem ekki væru notuð. Hann ætti þá að geta tekið við flóttamönnum, nema kristnin sé bara plat.

 .


mbl.is Kristín, Rán, Guðjón og Stefán Máni verðlaunuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 30. janúar 2025

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband