Þér hrútar ég kveð yður kvæði. Guðmundur Ingi Kristjánsson Önundarfirði.

Snilldar kvæði eftir karlinn. Menningarbragur að góðu hóteli þarna. Hrútarnir mundu nú gera usla í skóginum og stanga ferðamenn  ef þeir rynnu úr fjallinu (Útlenda) hvað þá? Það er gaman að vera bóndi og geta farið með svona kvæði eftir vestfirskan bónda.

1.
Þér hrútar, ég kveð yður kvæði.
Ég kannast við andlitin glöð
er gangið þér allir á garðann
að gjöfinni, fimmtán í röð.
Í heyinu tennurnar hljóma
við hornanna leikandi spil.
Það bylur í jötunnar bandi
og brakar við stein og þil.
2.
Í hóp yðar stöðvast ég stundum
og stend yður dálítið hjá.
Ég hallast við bálkinn og horfi
í hrútsaugun, skynug og blá.
Ég bökin og bringurnar spanna
og blíðlega strýk yfir kinn.
Þér heilsið með hornum og vörum.
Hver hrútur er félagi minn.
3.
Ég veit yðar látbragð og leiki
er losnar um fjárhúsvist.
Þá gangið þér greiðir í túnið
og gleðjist við atlögur fyrst.
Og margur er merktur og særður,
en minnstur sá hrútur er veik.
Og hugfanginn horfði ég löngum
á hornanna blóðugan leik.
4.
Svo fylgi ég ferlinum lengra.
Þá fagnið þér vorlífsins hag
er fetið þér snöggir til fjalla
einn farsælan góðviðrisdag.
Í háfjalla hlíðum og drögum
er hrútanna kjarnmikla beit.
Og sælt er að standa uppi á stalli
og stara yfir kyrrláta sveit.
5.
Er sólríku sumrinu hallar
þá sést yðar útigangsbragð.
Þér komið af öræfum allir
með aurugan, blaktandi lagð.
Þótt gott væri hnjúkinn að gista
við gróður og útsýni hans
þá lutuð þér herskáum hundum
og hrópyrðum smölunarmanns.
6.
Þar komið þér kátir og feitir.
Ég kannast við andlitin glöð
er haldið þér allir sem hópur
að húsunum, fimmtán í röð.
Á veggjunum villist þér ekki,
en vitið um hurðir og þil.
Svo heilsið þér herbergjum yðar
með hornanna leikandi spil.
5.
apríl 1931
Heimild: Tekið úr Húnaflói- vísna og kvæðasafn.
Guðmundur Ingi Kristjánsson bóndi
Kirkjubóli Önundarfirði ÍS.
Heimild:Sóldagar bls.22-23

mbl.is Rís lúxushótel í Önundarfirði?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 3. janúar 2023

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband