Menningarkista Jakobs Frímanns

Ég vona að frambjóðandinn sé mér sammála um eftir farandi. 1. Það eina sem fátækt fólk hefur efni á er að nefna börnin sín fallegum nöfnum. Í öðru lagi hefur það ekki efni á að kaupa hljóðfæri, en þá er hægt að spila á greiðu. Í þriðja lagi væri áhrifaríkast fyrir frambjóðann að hafa með sér kassa frá Sanitas og halda ræður í almannarýmum.

Þá er mikilvægt að aka á réttri tegund af bifreið. Ragnar Arnalds snéri á menn og ók á Austin Gipsy og menn tóku eftir því. Konurnar í Alþýðubandalaginu urðu að strauja fötinn af honum Því hann átti ekki til skiptana. Jakob ætti að prufa þetta trix. Stoppa á bæjunum fara úr fötunum og spyrja, gætuð þér straujað fyrir mig.

Þá er þetta með ætternið. Ekk gekk það vel fyrir Óttari Proppé. Hann kvaðst eiga ættir að rekja á Suðurland, enginn ættingi kom og heilsaði honum. Þetta er bara bábylja úr bókinni, Furstinn, að nauðsynlegt sé að eiga einhver skildmenni á svæðinu, eru ekki allir skildir Jóni Arasyni?

Þá er það handabandi, Húnvetningar, ku hafa þótt það lélegt á sinni tíð af Páli Péturssyni hér fyrr á árum, blessuð sé minning hans, að hann heilsaði ekki öllum á mannamótum, end  er það tafsamt verk að ganga milli borða eins og beiningarmaður. Frændi hans uppgötvaði að þetta væri slæmt fyrir flokkinn og sagði við menn: Þið getið alveg heilsað Páli að fyrrabragði. Þess vegna er best að vera við útganinn vel til fara og vatnsgreiddur og taka þar í hendina á mönnum. Þá kemst engin undan. Þá er það kórónuveiran, ekki má taka í hendina á mér, eins og stendur í kvæðinu að eigi að gera. Landskjörstjórn verður að úrskurða um þetta atriði. Og svo, og svo, bara vera kátur og brosa, þá kemur þetta allt með hægðinni. Mér finnst allt í lagi að fá svona týpur í framboð og fara um landið. Svona var þetta hjá Ragga Bjarna, alltaf á ferðinni, enda elskaði þjóðin hann. Að lokum fór Ómar í framboð og það dugði ekkert minna en að kalla hreyfinguna Íslandshreyfinguna. Ja hérna menn fara ekki með veggjum í bransanum.

Háskóli Ísland getur stundu verið mistækur. Ég hef hugsað það í áraraðir að auðvitað hefði átt að fá Ragnar Bjarnason til að vera með námskeið og fyrirlestra upp í HÍ vegna þess að hann kann á því lagið að vera alltaf glaður og í góðu skapi. Auðvitað er það aðalatriðið. Vonandi verður Jakob það einnig, Góða ferð, góða ferð, Jakob. hafðu með þér skeljasand í poka og stráðu honum í slóð þína, því þá er kominn Jakobsvegur, sem er hægt að markaðsetja í ferðaþjónustunni, það vantar svo mikið allt svoleiðis á Íslandi.


mbl.is Jakob Frímann til liðs við Flokk fólksins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 17. ágúst 2021

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband