Alltaf best að reyna að semja sig frá þessu og reyna að fá lækkun

Þetta er ekki gott mál og ég sem eldriborgari í félaginu er ekki ýkja kátur ef að þessum vanáætlaða kostnaði sé velt yfir á félagið og annaðhvort félagsgjöld hækkuð og byrðinni dreift á félagsmenn. Félagið er jú ekkert annað en félagsmennirnir. Eða félagið fer í þrot og bankinn sem er með veð í fasteigninni hirðir hana og fólk eyðir peningum í málaferli og svekkelsi.

Þeir sem eru með löggiltan kaupsamning án fyrirvara um þessar hækkanir og grandalausir eiga bara að láta sýslumann opna íbúðirnar og fá lykla afhenta. Það er náttúrlega hart að þurfa að standa í streði á síðustu metunum ævinnar. En stundum þarf að láta hart mæta hörðu og ná einhverri sóknarstöðu til að semja. Fá einhverja viðunandi lækkun á þessari viðbót og kúlulán á afganginn.

Láta svo endurskoða allt bókhald til að sjá hvar hlutitnir fóru að hallast og ef einhvað er óðelilegt við þessa hækkun á það að koma skýrt fram, við endurskoðun. Þetta gengur ekki.

Það er ekki hægt aðláta verktaka klifra upp á bakið á gömlu fólki og segja hott, hott.


mbl.is Íhuga hópmálsókn gegn FEB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 3. ágúst 2019

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband