Samtíðin getur verið ögn sniðug. Nú er aðalmálið að baka svokallaða lýðveldisköku á 75 ára afmæli lýðveldisins. Þetta er skemmtilegt og allir upptekknir í andránni hvort maður nái því að fá kökubita. 75m á höfuðborgarsvæðinu og 75m í dreyfbýli þar sem eru bakarí. Rjómapönnukökur í sveitinni
Uss ekki láta sér detta í hug að hugsa um meginlögin, stjórnarskrána. Þá er hætt við að almenningur fari að velta hvernig gæðum lífsins sé skipt. Svo sem sjávarkvóta, Landbúnaðrkvóta, hvernig auðæfi safnist smátt og smátt og smátt á fárra hendur til hagræðingar og kvóti slitinn af bújörðum og færður á aðrar og gamla höfuðbólið skilið eftir með fallnar girðingar og tún í sinu. Hugmyndafræðin er að allir gleymi stjórnarskránni en úði í sig köku í staðinn.
Eitt það fallegasta við 17. júni er þegar menn og konur trúlofa sig á deginnum og að sjá nýstúdenta með hvítu húfurnar það var stæll á því. Ég átti einn fermingarbróðir úr sveitinni og hann fór í kaupstaðinn og trúlofaði sig kærustunni sinni. Þau bösluðu svo við búskap á Kristfjárjörð sem svo var kölluð, vegna þess að einhver sjóður ætlaður fátækum til framfærslu átti jörðina. Að lokum fylltu þau jörðina af trjám. Það kemur sér vel núna og ekki var til einskis barist.
Ég eignaðist kærustu sem skartaði hvítri húfu á 17 júni. Það var gaman.
En hvað hefði verið viðeigandi að gera á 17 júni af þjóðinni? Auðvitað hefðu stjórnvöld átt að hafa þar forustu um.
Skunda á Þingvöll og setja landslýð nýja stjórnarskrá, en ekki að styðjast ævinlega við bráðabirgðastjórnarskrá afhenta af kónginum sem má sjá niður við stjórnarráð þar sem kóngurinn er með útrétta hendina með stjórnarskrá í greipinni.
Það var kenndur söngur þar sem ég gekk í farskóla. Það var stemming yfir því þegar kennarinn Hulda Pálsdóttir á Höllustöðum, þandi harmoníið og hóf sönginn,, Rís þú unga Íslandsmerki, upp með þúsund radda brag´´. Og allir sungu með bæði laglausir og þeir sem eitthvað gátu sungið. Þessa stemmingu hefði ríkisstjórnin átta að standa fyrir en ekki að fara minna okkur á skiptingu þjóðarkökunnar í sömu andránni og lagt er til að öryrkjar séu skertir um, hvað var það aftur mikið, 8 milljarðar.
Mikið um að vera í borginni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 17.6.2019 | 09:43 (breytt kl. 22:32) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Bloggfærslur 17. júní 2019
Myndaalbúm
Bloggvinir
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Bergljót Gunnarsdóttir
- Dagrún Steinunn Ólafsdóttir
- Grétar Mar Jónsson
- Gunnar Rögnvaldsson
- Hörður B Hjartarson
- Ingibjörg Friðriksdóttir
- Jón Páll Jakobsson
- Jón Ragnar Björnsson
- Kristján Hilmarsson
- Kristján P. Gudmundsson
- Lilja Skaftadóttir
- Sigríður B Svavarsdóttir
- Sigurbjörg Eiríksdóttir
- Sigurjón Þórðarson
- Sumarliði Einar Daðason
- Valdimar Samúelsson
- au
- cakedecoideas
- Björgvin Þangbrandur "Birkirmár" Gíslasson
- Guðjón E. Hreinberg
- Kristinn Ágúst Friðfinnsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (18.5.): 3
- Sl. sólarhring: 26
- Sl. viku: 164
- Frá upphafi: 547760
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 144
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar