Hvernig er umferðarstjórnun Keflavíkurflugvallarvallar háttað?

Þetta atvik veltir upp spurningu um hvernig umferðarstjórnun er háttað á Keflavíkurvelli?

Það liggur fyrir að mjög skyndilega spillast veðurskilyrði sem ef til vill menn gera ekki ráð fyrir  og eru óviðbúnir.

Lendingarskilyrði spillast og verða hættuleg. Hugsa þarf hratt og í lausnum. Taka þarf óvinsælar  ákvarðanir sem hafa áhrif á fjölda fólks og fjárhag flugfélaga. Þá þarf og er örugglega til plan.

Þetta gerðist t.d. í bílaumferðinni í gær skyndilega, svo aðstæður allar urðu mjög hættulegar á mjög stuttum tíma. RUV sem er kynnt sem öryggistæki landsmanna varaði ekki neitt við þessu ástandi svo ég hafi heyrt, heldur var endalaust malað í síbylju um hljómsveitir og nýjustu lögin. Ekkert um almanna öryggi.

Það sem leikmanni hefði dottið í hug við þessar aðstæður er að hætta öllu lendingum og láta hreinsa völlinn og sanda og að því loknu að leyfa lendingar.

En allt kemur  þetta í ljós þegar búið er að rannsaka málið. Menn eru svolítið ef til vill að vaxa útúr sína umhverfi sem maður finnur vegna reynslu sem sjómaður og bóndi á plani að taka þarf skyndilega ákvörðun vegna breyttra aðstæðna í náttúrunni og vegna breyttra veðuraðstæðna.

Nú eru menn við tæki og tól og stóla á þau.

Auðvitað er létt verk að vera vitur eftir á og þykjast vita allt. En það er nú einu sinni hlutskipti og stað bloggarans og því set ég þessar hugleiðingar fram.


mbl.is Keflavíkurflugvöllur opinn á ný
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 28. apríl 2017

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband