Ólafur talar og talar.

Ólafur talar og talar eins og hann er búina að tala allt útrásartímabilið.

Í svona þáttum þarf bara að vera tímavörður sem köttar á menn  sem blaðra og blaðra.

Þetta sér hver maður sem búinn er að horfa á Stöð 2 og RUV með forsetaframbjóðendum.

Og maður er litlu nær um forsetaframbjóðendur af því að Ólafur talar og talar í belg og biðu.


mbl.is Ósammála um 26. greinina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hörð gagnrýni á fráfarandi forseta.

Hörð gagrýni kom fram á Ólaf Ragnar Grímsson frá Ara Trausta.

,,Hann gagnrýndi Ólaf Ragnar Grímsson fyrir að vekja vonir hjá þjóðinni um að hann gæti komið til framkvæmda málum sem forsetinn hefði ekki vald til að skipta sér af. Hann sagði að vald forsetans væri aðallega af tvennum toga, þ.e. að því er snertir málskotsréttinn og síðan myndun ríkisstjórnar.

Ari Trausti gagnrýndi forsetann fyrir að tala eins og eins manns stjórnmálaflokkur. Hann spurði hvert væri þá hlutverk þingsins".

Það er einmitt það, eins  manns stjórnmálaflokkur?


mbl.is Ari Trausti gagnrýndi forsetann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Guðmundur Steingríms?

Ólafur Ragnar reynir enn og aftur að ala á óvissu og hræðslu um framtíðina.

Það er hvergi mælt fyrir því í stjórnarskrá að flokkarnir myndi ríkisstjórn þó það hafi orðið venja.

Þess vegna getur Guðmundur Steingrímsson orðið nokkurs konar almenningsvagn sem tínir upp þingmenn til stuðnings ríkistjórn, eins og strákar sem  velja  menn í knattspyrnu lið.

Og Mundi, mundi  sleppa stoppustöðinni á Bessastöðum og þá hefði Ólafur bara Dorrit til að drekka miðdegiskaffið með.


mbl.is Ekki víst að tækist að mynda stjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 7. júní 2012

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband