Mýrdælingar

Gengu þeir þá hver fram fyrir annan Mýrdælingar og þökkuð Vegagerðinni með mörgum fögrum orðum fyrir liðveislu og atbeina við að brúa Múlakvísl. Töldu þeir að snöfurmannlega hafi að verki verið staðið. Ármenn björgunarsveita voru sérstaklega heiðraðir.

Að því búnu gengu þeir allir sem einn maður, ásamt með Skaftfellingum, upp á Dyrhólaey, ristu þar upp torf og gengu í fóstbræðralag. Styggðust þá fuglar mjög og flugu upp.

Höfðu ýmsir mætir menn uppi merk orð um að nú verði allar deilur lagðar til hliðar um smáatriði tengd ferðaþjónustu.

Var þá haldinn stórveisla að Höfðabrekku á vegum Ferðaþjónustunnar og voru haldnar langar ræður og mikið skálað. Stóð sú veisla lengi. Var þar sérstaklega ákveðið að stofna sérstakt Vatnafélag um gerð framtíðar mannvirkja um Múlakvísl.

Leið svo sumarið.


mbl.is Fagna nýrri brú
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Múlakvísl yfir, umferðin undir

Er ekki mikið betra þegar nýtt umferðarmannvirki verður hannað við Múlakvísl að láta ána renna yfir, en hafa umferðina undir í steyptum stokk?

Ef það er hægt að reka 40 símastaura niður undir bráðabirgðabrúna að þá er nóg dýpi.

Ástæður fyrir því að brúin fór eru væntanlega að rýmið undir gömlu brúnni var of lítið, flóðið var of mikið, brúin var ekki nógu sterk, ásamt ýmsu öðru.

Ef málið er hugsað upp á nýtt og virkjanaverkfræðin notuð að setja umferðina í steyptan stokk og eða göng og áin látin renna frjáls yfir þann stokk þá er málið leyst varðandi framtíðarhlaup í ánni.

Eru ekki einhverjir góðir verkfræðinga tilbúnir til að hugsa málið og taka það sér?


mbl.is Fylktu liði yfir brú
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 16. júlí 2011

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband